Lífið

Fyrstu myndirnar af Vivienne og Knox seldar

Angelina Jolie og Brad Pitt. MYND/AFP
Angelina Jolie og Brad Pitt. MYND/AFP

People magazine hefur orðið sér úti um réttinn til að mynda tæplega mánaðargamla tvíbura Angelina Jolie og Brad Pitt og gefa út á bandarískum markaði. Hello! er með útgáfuréttinn í Bretlandi.

Jolie fæddi um miðjan seinsta mánuð tvíburana Vivienne Marcheline og Knox Leon. Fæðingin fór fram á Santa Maria spítalanum í Nice í suðurhluta Frakklands.

Talið er að OK! greiði 5,5 milljónir punda fyrir myndirnar og útgáfuréttinn. Tímaritið keypti einnig myndir af fyrstu stúlkunni sem Jolie og Pitt eignuðust saman, Shiloh Nouvel. Hún fæddist í Namibíu fyrir tveimur árum. Ekki er vitað hvað People magazine þarf að punga út fyrir myndirnar.


Tengdar fréttir

Angelina lögð inn á spítala

Angelina Jolie er lögst inn á spítala í Suður-Frakklandi, þar sem búist er við að hún dvelji þar til hún fæðir tvíburana sem hún gengur með.

Góðgerðarsamtök hagnast á fæðingu Brangelinu tvíburana

Talið er að andvirði ljósmynda af tvíburunum Vivienne Marcheline og Knox Leon Jolie-Pitt sem Angelina Jolie fæddi á sjúkrahúsi í Nice í Frakklandi á laugardagskvöld verður allt að jafnvirði 800 milljóna króna.

Börn fræga fólksins eru dýrar fyrirsætur

Myndir af nýfæddum börnum fallega og fræga fólksins í Hollywood eru eftirsóknar af stóru tímaritunum sem fjalla um glamúr, slúður og fræga fólkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.