Sakaði Guðna um að sitja í kjöltu seðlabankastjóra 28. október 2008 14:02 MYND/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sakaði í dag Guðna Ágústsson, formann Framsóknarflokksins, um að sitja í kjöltu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra með því að ganga fremst í flokki við að verja Davíð. Þetta kom fram í máli ráðherrans í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Guðni vakti athygli á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í morgun og sagði hana leið til að dauðrota. Benti hann á að talsmaður ríkisstjórnarinnar hefði á opnum fundi efnahags- og skattanefndar í gær sagt að engin skilyrði um vaxtahækkun fylgdu samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Annað hefði nú komið á daginn. Sagði Guðni skort á heildarpakka frá ríkisstjórninni og forystumenn hennar væru ekki í landinu. Spurði hann hvenær heildarmyndin yrði til því nú óttuðust fyrirtækin og fólkið gjaldþrot. Össur Skarphéðinsson sagði að Guðni væri í nánari sambandi við seðlabankastjóra en flestir og hann vissi að það væri Seðlabankinn sem tæki ákvörðun um stýrivexti. Ýmsir innlendir og erlendir sérfræðingar teldu nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að styðja við gengið. Ýmsir þeirra teldu að styrkja ætti gengið með vaxtahækkun. Seðlabankinn tæki þessa ákvörðun og sagði Össur að enginn þingmaður hefði komið meira upp á Alþingi og varið Seðlabankastjóra jafndyggilega og Guðni. Rætt væri um að seðlabankastjóri hefði formann Framsóknarflokksins í kjöltu sér. Guðni reiddist og sagði ráðherrann hafa staðið nakinn í ræðustól. Sagðist Guðni ekkert hafa komið í Seðlabankann frá því að honum var tilkynnt um kaup ríkisins á Glitni. Ræða Össurar væri sú ómerkilegasta sem flutt hefði verið á þingi. Sagðist Guðni myndu hafa rekið Össur úr embætti ef hann réði. Þá sagði Guðni ríkisstjórnina því miður látna. Össur svaraði því þá til að það sannaðist á viðbrögðum Guðna að sannleikanum yrði hver sárreiðastur. Ítrekaði hann að Seðlabankinn tæki ákvörðun um stýrivexti. Enn fremur benti hann á að einstakir ráðherrar hefðu reynt að lina þjáningar sem yrðu í samfélaginu og á fimmtudag myndi forsætisráðherra flytja skýrslu um efnahagsmál. Þar yrði farið yfir aðgerðir sem ríkisstjórnin hefði gripið til og myndi grípa til.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira