Innlent

Sakaði Guðna um að sitja í kjöltu seðlabankastjóra

MYND/GVA

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sakaði í dag Guðna Ágústsson, formann Framsóknarflokksins, um að sitja í kjöltu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra með því að ganga fremst í flokki við að verja Davíð. Þetta kom fram í máli ráðherrans í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Guðni vakti athygli á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í morgun og sagði hana leið til að dauðrota. Benti hann á að talsmaður ríkisstjórnarinnar hefði á opnum fundi efnahags- og skattanefndar í gær sagt að engin skilyrði um vaxtahækkun fylgdu samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Annað hefði nú komið á daginn. Sagði Guðni skort á heildarpakka frá ríkisstjórninni og forystumenn hennar væru ekki í landinu. Spurði hann hvenær heildarmyndin yrði til því nú óttuðust fyrirtækin og fólkið gjaldþrot.

Össur Skarphéðinsson sagði að Guðni væri í nánari sambandi við seðlabankastjóra en flestir og hann vissi að það væri Seðlabankinn sem tæki ákvörðun um stýrivexti. Ýmsir innlendir og erlendir sérfræðingar teldu nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að styðja við gengið. Ýmsir þeirra teldu að styrkja ætti gengið með vaxtahækkun. Seðlabankinn tæki þessa ákvörðun og sagði Össur að enginn þingmaður hefði komið meira upp á Alþingi og varið Seðlabankastjóra jafndyggilega og Guðni. Rætt væri um að seðlabankastjóri hefði formann Framsóknarflokksins í kjöltu sér.

Guðni reiddist og sagði ráðherrann hafa staðið nakinn í ræðustól. Sagðist Guðni ekkert hafa komið í Seðlabankann frá því að honum var tilkynnt um kaup ríkisins á Glitni. Ræða Össurar væri sú ómerkilegasta sem flutt hefði verið á þingi. Sagðist Guðni myndu hafa rekið Össur úr embætti ef hann réði. Þá sagði Guðni ríkisstjórnina því miður látna.

Össur svaraði því þá til að það sannaðist á viðbrögðum Guðna að sannleikanum yrði hver sárreiðastur. Ítrekaði hann að Seðlabankinn tæki ákvörðun um stýrivexti. Enn fremur benti hann á að einstakir ráðherrar hefðu reynt að lina þjáningar sem yrðu í samfélaginu og á fimmtudag myndi forsætisráðherra flytja skýrslu um efnahagsmál. Þar yrði farið yfir aðgerðir sem ríkisstjórnin hefði gripið til og myndi grípa til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×