Vilja að listaverkasafn bankanna verði í eigu þjóðarinnar 28. október 2008 14:17 Kristinn H. Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. MYND/GVA
Þrír þingmenn úr jafnmörgum flokkum hafa lagt fram frumvarp sem tryggja á að öll þau listaverk sem voru í eigu stóru bankanna þriggja verði í eigu þjóðarinnar áfram. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að sú óvænta staða sé komin upp í kjölfar bankakreppunnar að verðmæt listaverkasöfn viðskiptabankanna séu aftur komin í eigu íslensku þjóðarinnar. Með frumvarpinu eigi að tryggja að svo verði áfram. Í frumvarpi þeirra Kristins H. Gunnarssonar, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur og Bjarna Harðarsonar er meðal annars vitnað til orða ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, Guðmundar Árnasonar, í viðtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum. Þar sagði Guðmundur að listaverkasöfnin væru hluti af menningararfi okkar Íslendinga. Talið er að verkin séu um fjögur þúsund. Um 1.700 verk voru í eigu Landsbankans, 1200 í safni Kaupþings og tæplega 1.100 í eigu Glitnis.Þá hafa tvær þingkonur Vinstri - grænna, þær Kolbrún Halldórsdóttir og Álfheiður Ingadóttir, lagt fram þingsályktunar tillögu um sama efni, það er að Alþingi feli ríkisstjórninni að afhenda Listasafni Íslands til eignar og varðveislu listaverk í eigu hinna nýju ríkisbanka.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira