Innlent

Sló mann í höfuðið með glerflösku

MYND/KK

Sautján ára piltur hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega árás á annan mann á Akureyri í sumar.

Þá sló pilturinn manninn með glerflösku í höfuðið þannig að hún brotnaði og hlaut fórnarlambið skurð á höfði. Pilturinn kom fyrir dóm og játaði brot sitt en hann hafði aldrei áður komist í kast við lögin. Dómurinn horfði til þess og jafnframt að pilturinn hafði náð sáttum við fórnarlambið um skaðabætur vegna árásarinnar. Engu að síður sagði dómurinn árásina sérstaklega hættulega sem hefði getað valdið miklu líkamstjóni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×