Viðskiptanefnd fundaði um Bretaviðræður 28. október 2008 16:01 MYND/HH
Óvíst er hvenær viðræður Íslendinga við bæði Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans halda áfram. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Rætt var um stöðu viðræðnanna og um tryggingasjóð innistæðueigenda á fundinum en nokkrir gestir skýrðu nefndarmönnum frá stöðu mála. Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar, segir nefndina hafa fundað stíft að undanförnu til þess að fá yfirsýn yfir stöðu mála. Á fundinn í morgun hafi komið Ásmundur Stefánsson, sem farið hefur fyrir íslensku samninganefndinn í viðræðum við Breta, Páll Þórhallsson úr forsætisráðuneytinu og Áslaug Árnadóttir úr viðskiptaráðuneytinu. Enn fremur komu lögspekingarnir Stefán Már Stefánsson og Lárus Blöndal á fund nefndarinnar. „Það er engin niðurstaða komin í viðræðurnar við Breta en það kom fram að viðræðunum hefur verið frestað og ekki er vitað hvenær þær hefjast á ný. Þá var rætt um hugsanlega málssókn íslenska ríkisins og við fengum þær upplýsingar að hún kæmi fyllilega til greina," segir Ágúst. Þá bendir hann á að forsvarsmenn gamla Kaupþings skoði einnig rétt sinn en Ágúst Ólafur segir ólíklegt að ráðist verði í sameiginlega málshöfðun. Þeir Stefán Már Stefánsson og Lárus Blöndal fóru á fundinum yfir sína lagatúlkun á deilunni við Breta. Þeir telja að íslenskum stjórnvöldum beri ekki að greiða meira en sem nemur þeirri upphæð sem sé í tryggingarsjóði innistæðueigenda. Ágúst bendir á að um gríðarlega hagsmuni sé að ræða fyrir báðar þjóðir en óvissa sé um það hvenær viðræður hefjist á ný og hverjar lyktir mála verða.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira