Innlent

Telur stýrivaxtahækkun skynsamlega til að styðja við krónuna

Yngvi Örn Kristinsson, aðalhagfræðingur Landsbankans, telur að sú ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um sex prósent hafi verið skynsamleg. „Þetta er væntanlegt gert til þess að styðja við gengi krónunnar meðan við förum í gegnum það sem eftir er að verðbólgukúfnum," segir Yngvi.

Verið sé að koma í veg fyrir að fjármagn flæði úr landinu um leið og krónan verði sett á flot. Aðspurður býst Yngvi við að stýrivextir verði svo háir fram að áramótum en lækki svo hratt í kjölfarið.

Í svipaðan streng tekur Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum. Hún segir stýrivaxtahækkunina væntanlega tilkomna til þess að hægt verði að opna gjaldeyrismarkaðinn en ákvörðunin tengist ekkert eftirspurn. Hún sé því eingöngu til þess að hefta flæði fjármagns úr landi og koma í veg fyrir að krónan veikist stórkostlega. Edda Rós segist vona að ákvörðunin sé mjög tímabundin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×