Blikur á lofti um álversframkvæmdir 28. október 2008 19:00
Allir bankarnir þrír sem hugðust lána til álversframkvæmda í Helguvík eru komnir í þrot og ríkir óvissa um fjármögnun verkefnisins. Blikur er einnig á lofti um undirbúning álvers við Húsavík.Byrjað var að steypa undirstöður kerskála í Helguvík um miðjan síðasta mánuð. Norðurál fjármagnar sjálft upphaf framkvæmda með eigin fé en síðan var ætlunin að þrír bankar kæmu að lánveitingu, Kaupþing, Landsbankinn og Fortis-bankinn. Þeir eru hins vegar allir komnir í þrot og ríkir nú óvissa um fjármögnun, samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2. Talsmaður Norðuráls, Ágúst Hafberg, kvaðst engu að síður bjartsýnn í dag en viðurkenndi að verið væri að endurmeta verkefnið, bæði kostnað og fjármögnun.Undirbúningur álvers á Bakka við Húsavík er sömuleiðis í óvissu vegna fjármálakreppunnar. Forstjórar Landssvirkjunar og Alcoa á Íslandi, þeir Friðrik Sophusson og Tómas Már Sigurðsson, ræddu framhald verkefnisins í dag en þeir þurfa fyrir mánaðamót að ganga frá viljayfirlýsingu sem mótar næstu skref. Í viðtali við Stöð 2 vill Tómas Már ekki svara því hvort dregið verði úr kraftinum á verkefninu en segir að blikur séu á lofti.Þótt álverð hafi lækkað verulega frá því það var hæst fyrr á árinu er það þó enn 36 prósentum hærra en það var daginn sem Alcoa ákvað að reisa álverið á Reyðarfirði árið 2003. Álfyrirtæki um allan heim eru hins vegar að fresta framkvæmdum.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Erlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira