Beðið eftir úttekt Ríkisendurskoðunar 6. febrúar 2008 17:04 Gunnar Svavarsson, formaðir fjárlaganefndar. MYND/Lárus
Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, segir að nefndin muni bíða eftir stjórnsýsluúttekt á Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar áður en skoðað verði hvort endurskoða þurfi forsendur fjárlaga. Eins og fram kom fyrr í dag munar rúmum fjórum milljórum á fyrri og núverandi áætlunum fjármálaráðuneytisins á afborgunum vegna eigna sem seldar voru á gamla varnarliðssvæðinu á síðasta ári. Fjárlaganefnd ræddi málefni Þróunarfélagsins á fundi sínum í morgun og segir Gunnar að þar hafi verið ákveðið að óska eftir umsögn Ríkisendurskoðunar á efni bréfs fjármálaráðuneytisins. Stjórnsýsluúttekt á Þróunarfélaginu stendur yfir og mun Ríkisendurskoðun ljúka henni um miðjan mánuðinn. Í fjáraukalögum ársins 2007 var gert ráð fyrir 3,5 milljörðum króna í afborganir af seldum eignum á Keflavíkurflugvelli en aðeins voru greiddar 132 milljónir. Var það vegna þess að ekki náðist að ljúka gerð tveggja kaupsamninga. Þá var gert ráð fyrir að greiðslur á þessu ári vegna sölusamninga í fyrra næmu fjórum milljörðum en fjármálaráðuneytið segir að þær verði 2,8 milljarðar. Greiðslunar nema því um þremur milljörðum í stað 7,5 milljarða. Gunnar segir nefndina ekki hafa áhyggjur af málinu en treysti Ríkisendurskoðun til þess að fara yfir málið og skoða hvernig þessar breytingar eru tilkomnar. Aðspurður hvort endurskoða þurfi forsendur fjárlaga vegna þessa segir Gunnar að fjármálaráðuneytið telji svo ekki vera á þessu stigi. Fjárlaganefnd muni bíða eftir áliti Ríkisendurskoðunar og ef forsendur breytist verði brugðist við þessu í lokafjárlögum ársins 2008 eða fjáraukalögum.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira