Atvinnulausum fjölgar um fimmtíu á dag Magnús Már Guðmundsson skrifar 17. október 2008 13:15 Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar
Rúmlega 40 til 50 einstaklingar skrá sig atvinnulausa á degi hverjum hjá Vinnumálastofnun, að sögn Gissurar Péturssonar forstjóra stofnunarinnar. Undanfarna mánuði hefur þeim sem skrá sig atvinnulausa fjölgað mest í kringum mánaðarmót. Frá því að fregnir bárust af falli bankanna fyrir rúmum tveimur vikum hefur skráningum atvinnulausra fjölgað mikið. Vegna fjármálakreppunnar er aukið álag á starfsmenn og starfsemi Vinnumálastofnunar. ,,Álagið er að aukast á okkar stofnun samhliða fjölgun þeirra sem sækja um atvinnuleysisbætur," segir Gissur. Vinnumálastofnun er einnig vinnumiðlun og þar er boðið uppá einstaklingsbundna ráðgjöf. Dæmi eru um að einstaklingar sem mætt hafa mánaðarlega í viðtal hafi verið sagt í vikunni að mæta næst í byrjun febrúar eftir fjóra mánuði. Stofnunin hefur þurft að breyta verkalagi sínu og forgangsraða á nýjan hátt. Að sögn Gissurar er áhersla lögð á að taka á móti umsóknum þeirra sem sækja um atvinnuleysisbætur og vinna úr þeim. Einnig er fyrirhugað að styrkja vinnumiðlun og ráðgjöf með öðrum hætti. Gissur segir að enn sé talsvert um laus störf og eftirspurn eftir fólki. ,,Þetta eru auðvitað ekki bankastörf en allt er betra en að sitja aðgerðalaus." Aðspurður hvort að fjölga þurfi starfsfólki Vinnumálastofnunar segir Gissur: ,,Við þurfum aukið fjármagn og bæta við fólki til að vinna úr umsóknum. Til að mynda þurfum við að styrkja einingu okkar á Skagaströnd sem reiknar út atvinnuleysisbætur."
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Fleiri fréttir „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Sjá meira