Ók 160 kílómetra til að jafna um verkalýðsforingja 1. september 2008 14:39 Eins og sjá má bíður Sverris það verk að taka til á skrifstofunni sinni. MYND/Austurglugginn Gunnar
Það varð uppi fótur og fit á skrifstofu AFLs Starfsgreinafélags á Egilsstöðum þegar vertinn á Café Margaret á Breiðdalsvík réðst á framkvæmdastjóra félagsins, Sverri Mar Albertsson. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og veitingamanninum Horst Muller gramdist það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann. Árásin verður kærð til sýslumanns. „Við reynum að hafa fjör í þessu," sagði Sverrir þegar Vísir náði tali af honum. Hann segir að maðurinn sem um ræðir, sem er Þjóðverji, eigi „greinilega bágt." „Formaður félagsins og lögmaður okkar eru að undirbúa formlega kæru sem verður líklega send í seinna í dag." Sverrir segist hafa sloppið óskaddaður frá stympingunum en að allt sé á rúi og stúi á skrifstofunni. „Þetta er nú eldri maður og mér tókst að halda honum upp við vegg þangað til aðstoð barst, en menningarfulltrúinn á skrifstofunni skarst í leikinn og lagði mér lið," segir Sverrir. Hann segir að forsaga málsins sé sú að í langan tíma hafi verið ólag á samskiptunum við veitingafólkið, sem stundi það að auglýsa eftir ungu starfsfólki í Austur-Þýskalandi þar sem áhugasömum sé sagt að um sé að ræða létta sumarvinnu í framandi landi. Stúlkurnar greiða sjálfar fyrir farmiða sína til landsins og eru skráðar hér sem ferðamenn. Þegar á hólminn er komið reynist „fríið" hins vegar vera 6 til 7 klukkuríma vinnudagur og fá þær fyrir vikið um 80 þúsund krónur í mánaðarlaun, auk fæðis og húsnæðis. „Þessi umfjöllun í 24 stundum fór greinilega fyrir brjóstið á honum," segir Sverrir. „Ég gat reyndar lítið rætt við hann þar sem hann réðst umsvifalaust á mig. Þegar hann var farinn fann ég blað sem hann hafði misst en hefur greinilega fengið einhvern til að þýða á íslensku nokkur vel valin orð sem hann hefur ætlað að nota á mig. Á blaðinu stendur meðal annars að ég sé lygari, útlendingahatari og önnur verri orð. En hann kom þessum athugasemdum aldrei á framfæri, heldur rauk hann bara í mig." Sverrir segir að hjá AFLi hafi menn í langan tíma haft á tilfinningunni að framkoma mannsins við starfsfólk sitt sé vafasöm „og að stúlkurnar þurfi í raun að búa við kúgun frá hans hendi. Ef hann lætur svona við mig, tveggja metra manninn, hvernig lætur hann þá við unglingsstúlkur sem vinna hjá honum?" Að sögn Sverris hefur AFL áður þurft að skerast í leikinn á veitingastaðnum og hefur sambandið aðstoðað ungar stúlkur við að losna úr vistinni og komast til síns heima í Þýskalandi. „Í fyrravor kom einn pabbinn hingað gagngert til þess að ná í dóttur sína sem hafði sent honum SMS skilaboðum þar sem hún biður um að vera sótt. Samskiptin við þau hafa því ekki verið mjög aðlaðandi, ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í vinnu hjá þeim. Hótanir öskur og yfirgangur eru þeir samskiptamátar sem þetta fólk kýs að nota. Manninum hefur greinilega verið mjög heitt í hamsi, því hann reyndi að finna Sverri á föstudaginn. „Þá var ég ekki staddur á skrifstofunni Þetta eru 160 kílómetrar sem hann þarf að fara. Þetta hristi aðeins upp í okkur hérna í morgun en samstarfskonan mín á skrifstofunni er ánægð með þetta vegna þess að ég neyðist til þess að taka til á skrifborðinu," segir Sverrir Albertsson að lokum.
Mest lesið Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Innlent Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Innlent Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Innlent Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Innlent Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Innlent Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Innlent Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Veður Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi á dag að meðaltali Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Vill rannsaka störf sérstaks saksóknara eftir hrun Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Alda María nýr formaður Heimdallar Um 160 fatlaðir starfsmenn hjá Ás styrktarfélagi í Kópavogi Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Kindur aðstoðuðu björgunarfólk að finna afkvæmi sín Forstjóri Útlendingastofnunar vildi skýr svör frá Víði um umsókn Oscars Segja ásakanir á hendur séra Friðriki tómt rugl Lömb á kafi, útlendingaumræðan og Brynjar Karl í beinni Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni „Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mannréttindasáttmála“ „Þarna er gripið fram fyrir hendurnar á Alþingi“ Gæsluvarðhald framlengt aftur Alveg gáttuð á framgöngu Víðis sem hafi brotið trúnað Landris mælist áfram í Svartsengi Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar Hefur metnað til að leiða flokkinn þrátt fyrir slæmt gengi „Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“ Reyna að bjarga 100 kindum og lömbum á kafi í snjó Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Notkun rafbyssa í samræmi við markmið Varð undir bílhræi ofan í járntætara og fær 150 milljónir „Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“ Sjá meira