Innlent

15 sagt upp á fréttastofu RÚV

MYND/GVA

Heiðar Örn Sigurfinnsson trúnaðarmaður starfsmanna á fréttastofu Rúv segir starfsmenn sjokkeraða eftir atburði dagsins. 21 var sagt upp störfum og 23 verktakasamningum var sagt upp. Einnig er stefnt að launalækkunum um áramótin.

Nokkur reiði var á fundi starfsmanna sem var að ljúka en sú reiði beindist ekki eingöngu að stjórnendum Ríkisútvarpsins heldur einnig að yfirmönnum þeirra að sögn Heiðars.

15 starfsmönnum fréttastofu var sagt upp en fréttastofan er stærsta svið stofnunarinnar. Heiðar sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að hann hefði verið ósáttur við að hafa lesið um uppsagnirnar í Fréttablaðinu í morgun.

Páll Magnússon Útvarpsstjóri ræddi lekann á fundinum og sagði að sér þætti leitt að þetta hefði borist starfsmönnum með þessum hætti. „Hann sagði samt að þetta hefði ekki lekið út frá stjórnendum Rúv, heldur með öðrum hætti."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×