Umhverfisráðherra ekki samþykkur eignarnámi við Þjórsá 8. maí 2008 10:56
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segist ekki samþykk því að eignarnámi verði beitt við Þjórsá til þess að Urriðafossvirkjun verði að veruleika. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri - grænna. Þá sagði ráðherra að forstjóri Landsvirkjunar hefði ekkert umboð frá ríkisstjórninni til eignarnáms þótt hann héldi því fram. Atli vakti athygli á því að meirihluti kosningabærra íbúa á vesturbakka Þjórsár í Flóahreppi hefði skorað á sveitarstjórnina að endurskoða þá ákvörðun að setja Urriðafossvirkjun inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Þá hefðu allir jarðeigendur nema einn á áhrifasvæði Urriðafossvirkjunar á austurbakka Þjórsár undirritað yfirlýsingu þar sem þeir lýstu sig andsnúna því að virkjunin verði byggð. Benti Atli á að eignarnáms væri þörf til þess að virkjunin yrði að veruleika. Spurði hann því hvort fyrir lægi stuðningur ríkisstjórnarinnar við eignarnám í málinu. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagðist telja að það væri hlutverk sveitarstjórnarmanna að hlusta á og taka tillit til óska íbúa. Sveitarfélögin Færu með skipulagsvaldið og þeim bæri að fara varlega með það og huga að framtíðinni. Ekki hefði verið samþykkt í ríkisstjórn að Landsvirkjun fengi heimild til eignarnáms vegna virkjunarinnar og hún væri sjálf ekki samþykk því að eignarnámi yrði beitt. Sagðist hún ekki sjá neina þá almannahagsmuni í húfi að færa mætti rök fyrir eignarnámi. Enn fremur benti hún að breyting hefði orðið á stjórn Landsvirkjunar og þar væru nú tveir fulltrúar Samfylkingarinnar.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira