Borgarstjóri segist ekki hafa þurft að auglýsa starfið 8. maí 2008 18:11
Borgarstjóri segir að eftir skoðun á kjörum Jakobs Frímanns Magnússonar, nýráðnum framkvæmdarstjóra miðborgarmála, og fyrrverandi miðborgarstjóra R-listans frá árinu 2005 að laun þeirra séu sambærileg. Hann segir að farið hafi verið eftir reglum við ráðninguna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem borgarstjóri sendi frá sér fyrir stundu. Þar segir ennfremur: „Þannig voru mánaðarlaun miðborgarstjóra R-listans í febrúar árið 2005 kr.495.179. Auk þess fékk hann kr. 55.735. í viðbótarlaun eða alls kr. 550.914. Föst mánaðarlaun framkvæmdastjóra miðborgarmála eru kr. 474.214. og föst yfirvinna kr. 236.386, eða alls kr. 710.600. Launavísitala á þessu tímabili hefur hækkað um 29% og ef laun miðborgarstjóra R-listans eru framreiknuð miðað við launavísitölu þá verða þau jafn há og laun nýráðins framkvæmdastjóra miðborgarmála, þ.e. kr. 710.600. Hvernig staðið var að ráðningu í nýtt tímabundið starf framkvæmdastjóra miðborgarmála er í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um ráðningar starfsmanna. Í kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðsemjenda kemur skýrt fram að ekki sé skylt að auglýsa störf þegar ráðning skal standa í 12 mánuði eða skemur. Það er því ljóst að borgarstjóri, eins og aðrir stjórnendur borgarinnar, hafa fulla heimild til að stofna og ráða til tímabundinna starfa vegna tiltekinna viðfangsefna án auglýsingar Starf framkvæmdastjóra miðborgarmála heyrir beint undir borgarstjóra. Þannig er lögð áhersla á mikilvægi starfsins og þá vigt sem starfið og sá sem því gegnir á að hafa í samskiptum við sviðsstjóra, embættismenn og hagsmunaaðila. Starf miðborgarstjóra R-listans heyrði líka beint undir borgarstjóra. Starf sem auglýst var í desember s.l. þ.e. starf „verkefnisstjóra á skrifstofu borgarstjóra", sem borgarfulltrúar minnihlutans hafa gert að umræðuefni, er allt annað en hið nýja starf sem hér um ræðir. Það starf verkefnisstjóra átti að heyra undir skrifstofstjóra borgarstjóra og ákveðið var fyrir all nokkru að hverfa frá því að ráða í það starf. Það er skoðun borgarstjóra að með ráðningu framkvæmdastjóra miðborgarmála í umfangsmikil verkefni verði samþætting og framgangur mála tengd Miðborginni betri en áður og skili árangursríkara starfi í þeim mikilvægu efnum. Nýr framkvæmdastjóri miðborgarmála er hér á fyrstu starfsdögum sínum. Samkvæmt hefð verður farið yfir það hvort trúnaðarstörf á vettvangi nefnda og ráða borgarinnar sem hann tók að sér áður en til umræddrar ráðningar kom, geti með einhverjum hætti verið ósamrýmanleg nýju starfi hans hjá Reykjavíkurborg. Leiki minnsti vafi þar á mun hann að sjálfsögðu segja sig frá viðkomandi nefndarstörfum."
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira