Segir forsendur brostnar fyrir opinberri eigu HS 21. desember 2008 08:30 Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. „
Þegar Grindavík seldi okkur var miðað við að æskilegt væri að Hitaveita Suðurnesja yrði í eigu opinberra aðila. En í ljósi þess að núverandi meirihluti er myndaður af Reykjanesbæ og Geysi Green Energy, og í ljósi nýrra laga frá Alþingi, eru þær forsendur brostnar," segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan samþykkti nýverið að selja hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja, og hefur fulltrúi VG í stjórn Orkuveitu, Svandís Svavarsdóttir, gert athugasemd við að ekki sé tryggt að auðlindirnar haldist í eigu almennings. Guðlaugur bendir á að meirihlutasamstarf GGE og Reykjanesbæjar sé sterkt. Reynt hafi verið að fá hluthafasamþykkt fram, sem átti að tryggja hagsmuni minnihlutans, en því hafi verið hafnað. „Við höfum því skilið það svo að menn ætluðu í uppskiptingu fyrirtækisins og það hefur engu skipt hvort um sveitarfélög er að ræða eða ekki," segir hann. Hitaveitan sé nú allt annað fyrirtæki en þegar hluturinn var keyptur. Þann 1. desember var Hitaveitu Suðurnesja skipt í tvennt. HS-Veita á að sjá um dreifingu orkunnar, og HS-Orka um framleiðslu og sölu hennar. Samkvæmt nýjum orkulögum skulu opinberir aðilar eiga dreifingarfyrirtæki, en einkaaðilar mega eiga framleiðslufyrirtæki. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri Grindarvíkur tekur í svipaðan streng og Guðlaugur, nú sé „nýr tími í öllu tilliti". „Ég myndi segja að ríkið sjálft hafi gefið tóninn í þessu þegar það steig fram og seldi sinn hlut. Þá hófst þessi darraðadans allur. En HS-Veita verður þó í eigu almennings áfram," segir hún. Jóna hefði líka viljað sjá hluthafasamþykkt ganga í gegn. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir bæjarfélagið hafa áhuga á að styrkja stöðu sína í veitufyrirtækinu. „Við höfum sýnt því mikinn áhuga og það fer enginn [opinber aðili] út úr henni nema með því að selja öðrum slíkum," segir hann. Reykjanesbær muni engu að síður halda einhverjum hlut í samkeppnisfyrirtækinu HS-Orku. Ekki náðist aftur í Árna til að spyrja hann um hluthafasamþykktina, sem var hafnað.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira