Tilkynnt um ellefu líkamsárásir á Akureyri um helgina 16. júní 2008 12:00
Tilkynnt hefur verið um ellefu líkamsárásir á Bíladögum Akureyri um helgina auk fjölda skemmdarverka og þjófnaða. Óvíst hvort að hátíðin Ein með öllu verði haldin á Akureyri um verslunarmannahelgina. Mikil ölvun og læti brutust út aðfararnótt sunnudagsins á Akureyri þar sem Bíladagar vour haldnir um helgina. Fangageymslu fylltust af fólki og mikill aðsúgur var gerður að lögreglumönnum, sem hafa sjaldan kynnst öðru eins og voru lætin mun meiri en á nokkrurri verslunarmannahelgi hingað til. Alls hefur verið tilkynnt um ellefu líkamsárásir um helgina og liggja kærur fyrir í tveimur tilvikum. Einnig hefur verið tilkynnt um fjölmörg skemmdarverk og þjófnaði. Þannig voru rúður brotnar, umferðarmerki og auglýsingaskilti rifin niður og skemmd, garðhúsgögnum rænt og þau brotin og símum og reiðhjólum stolið svo eitthvða sé nefnt. Tuttugu ára aldurstakmark var á tjaldsvæðum bæjarins um helgina en það er í annað sinn sem aldurstakmark er sett á á tjaldsvæðunum. Um verslunarmannahelgina í fyrra var tuttugu og þriggja ára aldurstakmark á tjaldsvæðunum. Hagsmunasamtökin Vinir Akureyrar hafa síðustu árin staðið fyrir hátíðinni Ein með öllu sem haldin hefur verið á Akureyri um verslunarmannahelgina. Samtökin vilja koma áfram að skipulagningu hátíðarinnar en eru ósátt við aldurtakmörk á tjaldsvæðunum. Guðmundur Karl Tryggvason, félagi í Vinum Akureyrar, segir Akureyrarstofu hafa verið falið að standa að hátíðinni í ár ásamt Vinum Akureyrar. Enn sé hins vegar óljóst hvort af hátíðinni verði þar sem skipulagning hafi verið í nokkru uppnámi út af tjaldsvæðamálunum en verið sé að vinna að því að leysa þau mál.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Samstarf um farsímasjónvarp Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira