Segja flugumferðarstjóra ekki vinna mikla yfirvinnu 25. júní 2008 11:25 MYND/Heiða
Flugstoðir ohf. hafna þeim fullyrðingum formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra að vinna þeirra sé keyrð á yfirvinnu. Eins og fram hefur komið hafa flugumferðarstjórar boðað til 20 vinnustöðvana frá og með föstudeginum og vilja með því knýja á um nýjan kjarasamning. Í tilkynningu Flugstoða í dag kemur fram að haft hafi verið eftir Lofti Jóhannssyni, formanni Félags íslenskra flugumferðastjóra, í fréttum í gær að vinna flugumferðastjóra sé keyrð á yfirvinnu. Þetta sé ekki rétt því hver flugumferðastjóri hafi unnið að meðaltali um eina klukkustund á dag í yfirvinnu árið 2007. „Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík er stærsti vinnustaður íslenskra flugumferðastjóra og þar var yfirvinnan minnst á síðasta ári, eða að meðaltali 17 stundir á mánuði hjá hverjum flugumferðastjóra. Í flugturninum í Reykjavík var meðalfjöldi yfirvinnustunda 24 á mánuði, 16 á Akureyrarflugvelli og 20 í flugturninum í Vestmannaeyjum. Vinnuskylda flugumferðastjóra er 38 stundir á viku og heildarlaun fluguferðastjóra eru að meðaltali 809.000 krónur á mánuði," segir í tilkynningu Flugstoða. Þá benda Flugstoðir á að mest þörf sé fyrir yfirvinnu yfir sumarmánuðina þegar flugumferð sé mest. Á sama tíma eigi flugumferðastjórar rétt á fjögurra vikna sumarleyfi. „Að auki fá þeir fjögurra vikna leyfi yfir vetrartímann sem einnig þarf að manna. Framangreindar tölur um yfirvinnu geta varla talist háar á íslenskan mælikvarða enda hafa lítil vandkvæði verið á því að fá flugumferðastjóra til að taka að sér þessa aukavinnu, segir í tilkynningu Flugstoða.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira