Samningur um meðferðargang á Litla Hrauni 7. maí 2008 14:34 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Guðlaugur Þ. Þórðarson heilbrigðisráðherra og Páll Winkel fangelsismálastjóri.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í dag samning sem tryggir fé til að standa undir rekstri við sérstakan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem fangar sem kjósa svo fá hjálp við að vinna sig út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að undanfarna mánuði hafi verið starfræktur sérstakur meðferðargangur á Litla-Hrauni þar sem fangar sem dvelji á ganginum fái víðtækan stuðning og einstaklingsmiðaða ráðgjöf með það að markmiði að ná þeim út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar. Fangarnir gangist undir ákveðnar reglur og skuldbindi sig m.a. til að neyta engra vímuefna meðan þeir dvelji á meðferðarganginum. Um sé að ræða tilraunaverkefni sem upphaflega hafi verið hugsað til sex mánaða og að þeim liðnum skyldi reynslan vera metin og tekin ákvörðun um framhaldið. „Það er skemmst frá því að segja að árangurinn er mjög góður og því hafa dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðisráðherra tekið höndum saman til að tryggja áframhaldandi starfsemi meðferðagangsins. Leggur hvort ráðuneytanna fyrir sig fram 7,5 milljónir, alls 15 milljónir, sem dugir fyrir rekstrinum út þetta ár. Að auki verður sett á laggirnar samráðsnefnd ráðuneytanna sem mun vinna að heildarstefnumótun í þessum málum," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira