Sóltún fékk of háar greiðslur að mati Ríkisendurskoðunar 7. maí 2008 18:29
Með rangri skráningu á heimilismönnum fékk hjúkrunarheimilið Sóltún mun hærri greiðslur úr ríkissjóði en heimilið átti rétt á, að mati Ríkisendurskoðunar. Heilbrigðisráðuneytið samdi í apríl 2002 við Öldung hf. um rekstur hjúkrunarheimilis að Sóltúni 2 í Reykavík. Var það fyrsti samningurinn af því tagi við einkaaðila hér á landi. Greiðslur ríkisins til félagsins eru ákveðnar út frá svokölluðum RAI-stuðli sem mælir veitta þjónustu við sjúklinga. Fari stuðullinn yfir 1,20 þarf ríkið að greiða aukalega. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að frá árinu 2003 hefur RAI-stuðull Sóltúns ítrekað farið yfir 1,20 og hefur Sóltún í samræmi við það gert kröfur um aukagreiðslur frá ríkinu. Alls námu aukagreiðslur á árunum 2003 til 2005 um 108 milljónum. Árið 2006 gerði heimilið svo kröfu um viðbótargreiðslu upp á rúmar 22 milljónir. Ráðuneytið hefur hins vegar neitað að greiða þann reikning. Í kjölfarið var Ríkisendurskoðanda gert að gera úttekt á reikningum heimilisins. Samkvæmt ríkisendurskoðanda bendir allt til að Sóltúni hafi ekki fylgt leiðbeiningum um skráningu upplýsinga íl RAI-kerfið. Öldungur hf, sem rekur Sóltún sendi, frá sér yfirlýsingu nú síðdegis vegna málsins. Þar segir: „Forráðamenn Sóltúns vísa á bug þeim aðdróttunum sem felast í greinargerð Ríkisendurskoðunar. Þeir átelja einnig harðlega vinnubrögð Ríkisendurskoðunar, enda bendi niðurstöður til að gögn Sóltúns hafi ekki verið notuð í könnuninni. Enda gefi hún kolranga mynd af þjónustunni í Sóltúni."
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira