Skutu flugeldum að lögreglu á Akureyri 15. júní 2008 09:58
Mikil ölvun og ólæti voru í miðbæ Akureyrar í nótt og eru fangageymslur lögreglunnar fullar. Mikið fjölmenni er í bænum í tengslum við Bíladaga. Lögregla furðar sig á grófri og ruddalegri framkomu fólks í sinn garð og var dósum og flöskum meðal annars kastað í átt að lögreglu. Þá var flugeldum skotið á lögreglu á Ráðhústorginu. Segir lögreglan að skemmtanahald næturinnar hafi farið út í tóma vitleysu. Mikið var um slagsmál en ekki er vitað til að alvarleg meiðsl hafi hlotist af, en einn maður var fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Talsvert var um minniháttar skemmdarverk. Rúður voru brotnar á þremur stöðum og bíll skemmdist þegar hent var í hann flösku. Á þriðja tímanum í nótt var skoteldatertu skotið lárétt yfir Ráðhústorg og beint að lögreglumönnum og öðrum sem þar voru. Mildi var að enginn slasaðist og óskar lögreglan eftir upplýsingum um þá sem þarna voru að verki. Þá virtist sem fleiri skoteldar væru í umferð og tók lögreglan m.a. rakettu af einum manni. Nokkru síðar var gerður aðsúgur að lögreglumönnum sem voru að handtaka mann og reynt að hindra handtökuna. Komu aðrir lögreglumenn til aðstoðar og þurftu þeir að beita bæði kylfum og varnarúða. Átta voru handteknir og settir í fangageymslur.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira