Fékk 300 þúsund króna sekt fyrir áfengisauglýsingu Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. desember 2008 13:07
Breki Logason, blaðamaður Vísis og fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Hér og nú, var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun til þess að greiða 300 þúsund króna sekt fyrir að birta áfengisauglýsingu í blaðinu árið 2006. Breki sagði fyrir dómi að Hér og nú hafi verið gefið út sem fylgirit með DV og ritstjóri DV, Páll Baldvin Baldvinsson, verið ábyrgðarmaður að tímaritinu. Hann hafi sem ritstjóri séð um efnistök í blaðinu. Þá hafi hann skrifað greinar og tekið viðtöl. Einnig hafi hann setið fundi með öðrum sem ritað hafi greinar í blaðið. Breki kvaðst hafa séð forsíðu og þær greinar sem birst hafi í blaðinu áður en það hafi farið í prentun, en þá hafi auglýsingar ekki verið komnar inn í blaðið. Þær kæmu alveg í lokin. Væri gert ráð fyrir rými fyrir auglýsingar á réttum stöðum. Sá starfsmaður sem hefði umbrot tímaritsins með hendi hefði það á sinni könnu. Þá auglýsingu sem um ræðir hafi ákærði ekki séð fyrr en hann hafi verið kallaður í skýrslutöku hjá lögreglu. Þeir starfsmenn blaðsins sem séð hafi um að selja auglýsingar í blaðið hafi tekið ákvarðanir um allar auglýsingar í blaðinu. Kvaðst Breki hafa verið meðvitaður um verkaskiptingu á milli sín og ábyrgðarmanns blaðsins. Hann hafi verið starfsmaður DV áður en hann hafi tekið að sér ritstjórastarf tímaritsins Hér og nú. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að Breki beri, sem ritstjóri blaðsins, ábyrgð á birtingu auglýsingarinnar. Honum beri því að greiða 300 þúsund króna sekt.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira