Segir frumvarp um breytingar á eftirlaunalögum verða kynnt stjórnarandstöðu 21. nóvember 2008 11:02 MYND/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir að frumvarp um breytingar á eftirlaunalögunum umdeildum verði að líkindum kynnt formönnum stjórnarandstöðuflokkanna. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur, formanns Framsóknarflokksins. Ingibjörg gaf hins vegar ekki upp hvernær slíkt frumvarp yrði lagt fram. Valgerður gerði bæði ríkisstjórnina og eftirlaunamálin að umtalsefni í fyrirspurnartíma á Alþingi. Hún sagði framkoma Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar gangvart þjóðinni síðustu daga ekki boðlega. Það blasti við á hverjum degi að það væri mikill ágreiningur á milli stjórnarflokkanna og fulltrúar Samfylkingarinnar á þingi ástunduðu gaspur. Það væri algjör nýjung í íslenskum stjórnvöldum. Þá sagði Valgerður það gleðifrétt að stjórnarflokkarnir hefðu náð samstöðu um breytingar á eftirlaunalögum, en Vísir greindi frá því í gærkvöld. Sagði Valgerður að sér sýndist sem frumvarpið sem væri að fæðast væri í líkingu við það sem Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefði lagt fram fyrir um tveimur árum en Ingibjörg Sólrún hefði hafnað þá. Haldast ekki í Framsókn vegna skoðanaágreinings Ingibjörg sagðist ekki átta sig á því hvaða spurningu væri beint til sín. Hún sagði hins vegar að hugmyndir sínar um breytingar á eftirlaunalögunum væru annars eðlis en Halldór hefði komið fram með á sínum sínum tíma. Hvað varðaði Samfylkinguna þá væri hún stór flokkur. Í honum væru margar vistarverur og ólíkar skoðanir. Benti hún hins vegar á að Framsóknarflokkurinn væri örflokkur en þar gætu menn ekki haldist við vegna skoðanaágreinings. Hægt væri að ræða hluti í Samfylkingunni án þess að menn stykkju frá borði unnvörpum. Valgerður sagðist í framhaldinu greinilega hafa komið við kauninn á ráðherra og benti á að helmingur kjósenda Samfylkingarinnar styddi ekki ríkisstjórnina. Þá krafðist hún þess að utanríkisráðherra svaraði því hvort það væri að koma fram frumvarp um eftirlaunalög og hvort formenn stjórnarandstöðuflokkanna fengju upplýsingar um það hvernig það væri vaxið. Sagði hún enn fremur að ekki myndi standa á framsóknarmönnum að breyta lögunum. Ingibjörg Sólrún sagði ánægjulegt að það stæði ekki á framsóknarmönnum að breyta lögunum og hún gæti fullvissað Valgerði um að ef að líkum léti yrði frumvarpið kynnt formönnum stjórnarandstöðuflokkanna.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira