Innlent

Standa fyrir sameiginlegu átak gegn ölvunarakstri

MYND/Hari

Lögregluliðin á Suðvesturlandi hafa hafið sameiginlegt átak gegn ölvunarakstri sem standa mun til áramóta.

Skipulegu eftirliti verður haldið úti á ýmsum tímum sólarhrings og á mismunandi stöðum eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar. Markmið átaksins er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum fíkniefna en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×