Frumvarp til að greiða fyrir bílasölu úr landi lagt fram á Alþingi 21. nóvember 2008 15:49
Fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum og lögum um virðisaukaskatt. Með frumvarpinu er lagt til að heimilað verði fram í apríl á næsta ári að endurgreiða virðisaukaskatt og vörugjald af notuðum ökutækjum sem flutt eru úr landi. Í greinargerð með frumvarpinu er bent á að verulegur fjöldi ónotaðra ökutækja sé í landinu og með frumvarpinu sé ætlunin að greiða fyrir sölu þeirra úr landi. Það muni auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins til skemmri tíma, jafnframt því að ýta undir það að hjól atvinnulífsins fari að snúast á ný. Auk þess megi reikna með að frumvarpið flýti fyrir fjölgun vistvænna ökutækja í umferðinni.„Endurgreiðslan tekur mið af þeirri fjárhæð sem greidd var í vörugjöld og virðisaukaskatt þegar ökutækið var flutt inn að teknu tilliti til aldurs þess. „Þannig lækkar viðmiðunarfjárhæð endurgreiðslu um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð, fyrstu 12 mánuðina eftir skráningu ökutækisins, og 1,5% fyrir hvern mánuð eftir það. Samkvæmt frumvarpinu hafa eigendur ökutækja sem notið hafa innskattsréttar af ökutækjum sínum ekki rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í frumvarpinu er einnig lagt til að tollstjórum verði veitt heimild til gjaldtöku vegna eftirlits með ökutækjum sem flutt eru úr landi, en tollstjórinn í Reykjavík mun annast endurgreiðslurnar," segir í greinargerðinni.Enn fremur kemur fram að breytingin muni kosta ríkissjóð á bilinu 1,5-2 milljarða í endurgreiðslur en á móti vega óbein áhrif aukinnar veltu og veltuskatta af þeim gjaldeyri sem fæst fyrir bifreiðaútflutninginn. Áætlað er að allt að 5.000 bifreiðar verði fluttar úr landi á næstu mánuðum og reiknar fjármálaráðuneytið með að tíu milljarðar fáist fyrir þá.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira