Aurora velgerðarsjóður úthlutar 210 milljónum 23. janúar 2008 17:19 Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson.
Stjórn Aurora velgerðasjóðs kynnti í dag þá ákvörðun sína að ráðstafa alls 210 milljónum króna til fyrstu styrktarverkefna sjóðsins. Það eru hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir landslags-arkitekt og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa sem stofnuðu velgerðasjóðinn fyrir réttu ári á fimmtugsafmæli Ólafs, 23. janúar 2007. Þá var einn milljarður króna lagður í sjóðinn og nú hefur verið veitt úr honum í fyrsta sinn. „Gert er ráð fyrir að verja arði og vaxtatekjum sjóðsins til ýmissa verkefna í þróunar-löndum og til að göfga mannlíf á Íslandi með því að styrkja verkefni á sviði menningar, mennta og lista í samræmi við samþykktir sjóðsins og ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni," segir í tilkynningu frá sjóðnum. Í dag var tilkynnt um hvaða fjórir aðilar hlutu fyrstu styrkina úr sjóðnum, samtals 100 milljónir króna fyrir árið 2008. Þar sem tvö þeirra verkefna eru til þriggja ára var 210 milljónum ráðstafað í það heila. Styrk til eins árs hlutu: Fuglasafn Sigurgeirs í Mývatnssveit fær 20 milljónir króna til að koma upp fullkominni sýningaraðstöðu með tilheyrandi búnaði í nýbyggingu safnsins að Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit. Héraðssjúkrahúsið í Mangochi í Afríkuríkinu Malaví fær 20 milljónir króna vegna framkvæmda við að stækka og efla barnadeildina þar. Verkefnin sem hlutu styrki til þriggja ára: Menntaverkefni UNICEF í Afríkuríkinu Síerra Leóne fær alls 120 milljónir króna á þremur árum til að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga. Veittar verða 40 milljónir króna í ár, 40 milljónir króna árið 2009 og 40 milljónir króna árið 2010. Nýr sjóður til styrktar ungu tónlistarfólki, Kraumur að nafni, fær alls 50 milljónir króna til að styrkja ungt tónlistarfólk til listsköpunar og kynningar á verkum sínum, þar af 20 milljónir í ár og samtals 30 milljónir króna 2009 og 2010. Kraumur tónlistarsjóður er stofnaður að frumkvæði Aurora velgerðasjóðs. „Menntamálaráðherra Síerra Leóne, dr. Minkailu Bah, kom til Íslands í tilefni af ákvörðun Aurora velgerðasjóðs um að styðja uppbyggingu menntakerfis landsins. Hann hitti m.a. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra að máli og notaði tækifærið til að heimsækja bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík," segir að lokum í tilkynningunni.Á heimasíðu sjóðsins má nálgast frekari upplýsingar.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Erlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Sjá meira