Tek ekki þátt í að brjóta niður starf sem byggt hefur verið upp 25. september 2008 13:45 Lögreglumenn koma til fundar með Jóhanni R. Benediktssyni í gær. MYND/Stöð 2 „
Ég vil ekki taka þátt í því að brjóta niður það starf sem byggt hefur verið upp á síðustu árum," segir Ásgeir J. Ásgeirsson, starfsmannastjóri lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum, um þá ákvörðun sína að hætta störfum hjá embættinu. Ásgeir er í hópi þeirra fjögurra lykilstarfsmanna hjá embættinu sem í gær tilkynntu að þeir hefðu óskað eftir því að láta af störfum um næstu mánaðamót. Auk hans eru það Jóhann Benediktsson lögreglustjóri, Eyjólfur Kristjánsson, staðgengill hans, og Guðni Geir Jónsson, fjármálastjóri embættisins. Bæði Jóhann og Eyjólfur hafa deilt harkalega á Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í málinu. Jóhann hefur talað um trúnaðarbrest milli sín og ráðherra og Eyjólfur sakar Björn um einelti í garð Jóhanns og lögreglustjóraembættisins vegna hugmynda um uppskiptingu embættisins. „Þetta er búið að vera makalaust" Ásgeir segist hverfa frá störfum af sömu ástæðum og Jóhann og Eyjólfur og segist hann hafa fengið starf annars staðar. Hann tekur undir orð Eyjólfs um einelti ráðherra. „Þetta er búið að vera makalaust og mjög furðulegt umhverfi að starfa í og það er skrýtið að horfa á aðferðir stjórnsýslunnar," segir Ásgeir. Breytingar urðu á embættinu 1. janúar 2007 þegar tollgæsla, öryggiseftirlit og landamæra- og löggæsla á Keflavíkurflugvelli og löggæsla á Suðurnesjum voru færð undir embætti lögreglustjórans. Ásgeir segir að fækkað hafi í liðinu frá því fyrir breytingar. „Við erum núna með 76 lögreglumenn en þeir voru nálægt 90 fyrir sameiningu," segir Ásgeir og bætir við að embættið hafi ekki fengið fjármuni til mönnunar á sama hátt og fyrir breytingar. „Ef þessir hlutir hefðu verið í lagi hefði maður ekki verið á leiðinni út," segir hann enn fremur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira