Vill reisa minnisvarða um Bobby Fischer við Laugardalshöll 24. janúar 2008 14:52
Björn Ingi Hrafnsson óskaði fyrir stundu eftir lausn frá störfum sem borgarfulltrúi Framsóknarflokksins af persónulegum ástæðum eftir að borgarstjórnarfundur hófst á ný. Hann hófst í hádeginu en gera varð hlé á fundinum vegna háværra mótmæla andstæðinga nýs meirihluta. Björn Ingi þakkaði samstarfsfólkinu gott samstarf og óskaði nýjum meirihluta til hamingju og velfarnaðar. Björn Ingi sagði að nú biði borgarstjórnar að treysta þá mynd sem almenningur hefði af stjórnmálunum. Myndin mætti ekki vera sú að þar væru valdagírugir stjórnmálamenn plottandi í hverju horni. Hvatti hann alla borgarfulltrúa til þess að koma að því. Þá þakkaði hann samstarfsfólki í borgarráði, ÍTR og Orkuveitunni samstarfið og fyrir að fá að innleiða frístundakort í borginni. Sagðist hann vonast til að borgarráð, sem fundar í dag, myndi samþykkja síðustu tillögu hans um að minnisvarði um Bobby Fischer yrði reistur við Laugardalshöll. Stjórnmálin munu sakna Björns Inga Samstarfsfólk hans í borgarstjórn fór fögrum orðum um hann. Þannig sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, að þau hefðu átt ótrúlega gott samstarf og sagði að stjórnmálin myndu sakna Björns Inga. Hann væri dugmikill og vissi að tækifærin biðu alls staðar. Þau hefðu ekki alltaf verið sammála en hún vonaðist eftir því að fá að vinna aftur með honum. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði að brotthvarf Björns Inga hefði komið mikið á óvart. Hann væri fyrirferðarmikill maður í pólitík og harður andstæðingu en fáir væru þeir sem jafngaman væri að vinna með. Hann hefði kynnst heilindum Björns Inga í samstarfi þeirra síðustu vikna. Sagði hann missir af Birni Inga úr Tjarnarkvaretettinum. Gaf Birni Inga flugmiðann með lausa sætinu Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna, þakkaði Birni einnig samstarfið og sagði hann pólitískt animal sem hefði botnlaust gaman af stjórnmálum. Sagði hún sorglegt að Björn Ingi hefði þurft að þola árásir að undanförnu en hún hefði vonast til að þau myndu mynda vinstri stjórn hinum megin Vonarstrætis. Gaf hún Birni Inga flugmiðann úr flugferðinni til Egilsstaða þar sem sætið losnaði og hún fékk höfuðhögg, að skilnaði. Borgarfulltrúar samþykktu lausn Björns Inga með öllum greiddum atkvæðum.
Mest lesið Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent Með töskurnar fullar af marijúana Innlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Innlent Fleiri fréttir Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Sjá meira