Innlent

Fámennt á pöllunum

Fundur borgarstjórnar Reykjavíkur er í þann mund að hefjast aftur eftir að nýkjörinn forseti borgarstjorna gerði hlé á honum vegna háværra mótmæla á áhorfendapöllum.

Fámennt er nú á áhorfendapöllum og svo viðist sem að flestir mótmælendur hafi svarað kalli Önnu Pálu Sverrisdóttur, eins skipuleggjenda mótmælanna, sem bað mómælendur að yfirgefa ráðhúsið þar sem tilgangi mótmælanna væri náð. Hún bætti því hins vegar við að baráttunni væri hvergi nærri lokið. "Þetta er okkar reykjavík," kallaði Anna yfir hóp mótmælenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×