Allt í hnút hjá læknum 20. september 2008 17:58
Fundi er lokið í Karphúsinu þar sem læknar og fulltrúar ríkisins reyndu að komast til botns í samningaviðræðum. Fundurinn var árangurslaus og formaður samninganefndar lækna segir að verið sé að ýta læknum út í aðgerðir sem þeir hefðu viljað komast hjá. „Það slitnaði upp úr þessum viðræðum," segir Gunnar Ármannsson, formaður samninganefndar lækna. „Framhaldið er það að læknar fá greinilega engan samning án þess að grípa til aðgerða. Það er því verið að ýta læknum út í aðgerðir sem þeir hefðu gjarnan viljað sleppa við." Ríkið lagði fram tilboð sem Gunnar segir að hafi hljóðað upp á umþaðbil sex prósenta launahækkun. „Það tilboð hefði einnig haft í för með sér sölu á réttindum. Við komum með gagntilboð sem hefði þýtt 9,5 prósent hækkun," segir Gunnar en ríkið hafnaði því og var ekki tilbúið til þess að koma með annað gagntilboð. „Og þarmeð var þessu sjálfhætt. Næsti fundur í deilunni hefur verið ákveðinn fyrsta október, en þá mun aðalfundur læknafélagsins vera yfirstaðinn. „Eftir aðalfundinn mun það væntanlega skýrast til hvaða aðgerða við munum grípa," segir Gunnar Ármannsson.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira