Innlent

9 gistu fangageymslur í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nóttina hafa verið með rólegasta móti. Þó gistu 9 manns fangageymslur og er mikið af því tengt ölvun og látum í miðborginni. Sjö voru kærðir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir lyfjaakstur.

Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu og voru þær allar minniháttar að sögn lögreglu. Eitt innbrot var tilkynnt í Grafarholti í Reykjavík. Þar vor brotist inn í nokkurskonar dýralæknabúð en þaðan var engu stolið. Engu að síður var rótað og skemmt, þjófurinn hefur líklega verið í leit að lyfjum.

Annars var nóttin með rólegasta móti víðast hvar um land. Sérstakt umferðarátak er um þessar mundir á Blönduósi og var einn tekinn grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar var síðan tekinn með lítilræði af fíkniefnum á sér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×