Lekinn í Glitni rannsakaður 26. nóvember 2008 18:30
Nýi Glitnir rannsakar nú hvort starfsmaður bankans hafi lekið í Morgunblaðið trúnaðarupplýsingum um milljarðlán Gamla Glitnis. Málinu hefur einnig verið vísað til Fjármálaeftirlitsins sem gæti vísað því áfram til lögreglu. Í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu á sunnudaginn var rætt um milljarðalán og fjallað um upplýsingar sem sagðar voru úr lánabók Gamla Glitnis. Talað var um meint brot á verklagsreglum vegna lánveitinga. Nýi Glitnir hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um meint brot á þagnarskylduákvæðum laga um fjármálafyrirtæki í tengslum við þessa grein. Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur bankans, segir málið tvíþætt og lúti að þeim sem hafi látið blaðinu upplýsingar í té og að blaðinu fyrir að birta þær. Í lögum segi að sá sem taki við slíkum upplýsingum sé bundinn þagnarskyldu á sama hátt og starfsmenn bankans. Tómas segir það nú Fjármálaeftirlitsins að ákveða næsta skref í málinu. Hvort því verði vísað til lögreglu eða hvort ákveðið verði mögulega að beita sektum. Tómas segir ekki vitað hver hafi lekið upplýsingunum, hvort það hafi verið núverandi eða fyrrverandi starfsmaður bankans eða þá yfir höfuð starfsmaður nýja eða gamla glitnis. Nýi Glitnir leiti hins vegar þess sem lak upplýsingunum og málið í rannsókn. Tómas segir ekki nema sjálfsagt að viðskipti gömlu bankanna verði rannsökuð ítarlega en ómögulegt að bankaleynd sé aflétt með þeim hætti að fjölmiðlar birti upplýsingar án þess að um þær sé fjallað á réttum vettvangi fyrst. Meðan lögin séu eins og þau eru verði bankarnir að standa vörð um hagsmuni viðskiptavina samkvæmt þeim. Tómas telur að með því að setja lagaákvæði um vernd fyrir uppljóstrara úr bönkunum sé í raun verið að aflétta bankaleynd með ákveðnum hætti.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira