Innlent

Gagnrýna viðskiptahætti með notaða bíla harðlega

Þröstur Karelsson, sölustjóri Bílamarkaðsins í Kópavogi, segir aðgerðarleysi þeirra eftirlitsaðila, sem eigi að fylgjast með að réttir viðskiptahættir séu viðhafðir við sölu bifreiða og vöru og þjónustu almennt, vítavert. Enn einu sinni fari bílaumboðin af stað með ímyndaðan afsláttarleik við neytendur. Með því að hækka verð notaðra bifreiða og mynda með því stórafslætti við sölu.

„Við höfum gert kannanir á bílum á plani Bílaoutlet sem Ingvar Helgason rekur og vistað upplýsingar á heimasíðunni okkar, bbv.is. Þar er hægt að fylgjast með aðferðum þessara aðila," segir Þröstur sem býst við að fleiri af stóru bílaumboðunum fari af stað í kjölfar Ingvars Helgasonar hf (IH) og Bifreiða og landbúnaðarvéla (B&L).

Gripið til örþrifaráða

„Bílamarkaðurinn harmar slíka viðskiptahætti sem B&L og IH stunda. „Slíkir viðskiptahættir geta haft slæm áhrif á bílamarkaðinn á Íslandi um ókomin ár, því tækifærismennska stóru bílaumboðanna er í algleymingi nú. Þeim líður greinilega hálfilla vegna mikils bílalagers og lítillar sölu á nýjum bílum. Þá er gripið til örþrifaráða, sbr. það sem Bílaoutlet er að gera, múgæsingur og platleikur í hæsta gæðaflokki og ekkert til sparað en inn á milli eflaust hægt að kaupa bíla á fínu verði hjá þessum aðilum," segir Þröstur.

Bílamarkaðurinn hefur að sögn Þrastar skoðað fjölmörg dæmi og borið saman við verð á íslenskum bílamarkaði ásamt því að slá viðkomandi dæmum/bílum upp í reikniforriti Bílgreinasambandsins.

„Okkar niðurstaða er sú að Bílaoutlet IH og B&L sýni mögulega hæsta og oft á tíðum mun hærra ásett verð bíla en almennt gerist á markaðnum. Með því sýnist væntanlegum kaupendum að umtalsverður „afsláttur" sé á viðskiptunum á viðkomandi bifreiðum," segir Þröstur.

Í dag er bílamarkaður á Íslandi kaupendamarkaður, þ.e.a.s. hægt er að gera góð kaup hjá flestöllum bílasölum sökum erfiðari sölu á bílum en oft áður. Með auglýsingaherferð Bílaoutlet virðist sem kaupendur láti plata sig í kaup miðað við þá miklu afslætti sem þar eru boðnir," segir Þröstur að lokum.

Enn sem komið er hefur ekki náðst í fyrirsvarsmenn Ingvars Helgasonar eða Bifreiða og landbúnaðarvéla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×