Hefur séð söngleikinn Abbababb tólf sinnum 4. maí 2007 10:45 Einlægari aðdáandi Abbababb vandfundinn en Heiða reynir að mæta á allar sýningar. „
Ég var veik síðast og komst ekki. Þannig að ég er bara búin að sjá tólf sýningar," segir söngkonan og pólitíkusinn Heiða sem gjarnan er kennd við Unun. Þegar Fréttablaðið náði af henni tali var hún stödd með félögum sínum í Vinstri grænum á Hornafirði en fyrir dyrum stóð kosningafundur þar þá um kvöldið. Ekki er ofsagt að segja Heiðu einlægan aðdáanda söngleiksins Abbababb sem sýndur er í Hafnarfjarðarleikhúsinu um þessar mundir. Hún er búin að sjá tólf sýningar og er hvergi nærri af baki dottin. Hún ætlar að sjá þær fleiri. „Ég reyni að vera á öllum sýningum. Þetta er svo skemmtilegt. Og mannbætandi. Mér líður alltaf svo vel þegar ég kem út af sýningunni." Dr. Gunni, vinur Heiðu, er höfundur söngleiksins og Heiða segir þau alveg á sömu línu með það að reyna að gera bara það sem er skemmtilegt. „Þegar maður verður fullorðinn gleymast aðalatriðin. Allir eru uppteknir við að græða peninga og svona. Ég hef aldrei verið mikið í því. Og þetta leikrit minnir mig rækilega á að það á bara að gera það sem er skemmtilegt." Úr söngleiknum góða sem Heiða hefur í hávegum. Heiðu finnst ekkert undarlegt við þetta mikla dálæti. Bendir á að þegar kvikmyndin Grease var sýnd voru dæmi um að menn færu á hana tuttugu sinnum og oftar. Og góðar bækur lesa menn aftur og aftur. Sjálf segist hún til dæmis vera búin að lesa allar Harry Potter- bækurnar sex sinnum. „Það var ekkert planað að ég myndi mæta og mæta og hlæja," segir Heiða spurð hvort ekki hafi hreinlega komið til tals að borga henni fyrir að mæta og hvetja áhorfendur með einlægum hlátri sínum. „En það eru reyndar hæg heimatökin. Maðurinn minn er í hljómsveitinni, spilar á gítar, og barnið okkar er á hárréttum aldri, fimm ára, og fjölskyldan er bara í þessu á sunnudögum. Launin mín felast í því að vera minnt á það að lífið á að vera skemmtilegt. Ég er alltaf að draga einhverja með mér og fólk segir alltaf eftir sýningar: Jájá, ég skil núna af hverju þú ferð aftur og aftur." Sýningum á Abbababb lýkur síðar í þessum mánuði en Heiða vonar innilega að Abbababb verði tekið upp aftur á næsta leikári. Hún segist ekki alveg vita hvað fjölskyldan muni taka sér fyrir hendur á sunnudögum þegar sýningum lýkur. „Við verðum bara að stofna leynifélag sjálf, maðurinn minn, ég og barnið, og rannsaka óleyst mál. Hittast á leikvöllum og svona."
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Fleiri fréttir Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Sjá meira