Fjórir piltar ákærðir fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku 15. mars 2007 18:29
Fjórir ungir piltar eru ákærðir fyrir að hafa nauðgað fjórtán ára stúlku og var mál þeirra tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Meint hópnauðgun átti sér stað í samkvæmi í heimahúsi í Reykjavík haustið 2005. Piltarnir fjórir eru fæddir á árunum 1988 til 89 og voru á aldrinum fimmtán til sautján ára þegar meint brot áttu sér stað. Í dag eru þeir sautján til nítján ára. Stúlkan var hins vegar fjórtán ára en hún er fædd árið 1991. Hún þekkti engan piltanna fyrir og hitti þá fyrst í partýi í heimahúsi í Reykjavík. Þar fór meint nauðgun fram og kærði stúlkan verknaðinn til lögreglu í framhaldinu. Lögreglan í Reykjavík sendi málið til ríkissaksóknara í lok nóvember á síðasta ári, einu ári eftir að kæra barst lögreglu. Við rannsókn málsins naut lögreglan í Reykjavík aðstoðar lögreglunnar í Keflavík þar sem piltarnir höfðu allir verið búsettir á Suðurnesjum en flestir þeirra hafa í öðrum tilfellum komið við sögu lögreglu. Ólíklegt má telja að stúlkan þurfi að koma fyrir dóm sökum ungs aldurs en þess í stað verði stuðst við framburð hennar sem tekinn var upp. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 hefur málið reynt mjög á stúlkuna en sökum ungs aldurs hennar og meintra gerenda voru Barnaverndaryfirvöld kölluð til á sínum tíma. Reiknað er með að málflutningur geti hafist í maí.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fleiri fréttir Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Sjá meira