Vona að ég nái fimmtugu 15. mars 2007 09:00 Baldur Trausti segir aðra fjölskyldumeðlimi sjá um að hampa afmælum, og kemst því ekki upp með að gleyma þeim alveg. MYND/Brink
Baldur Trausti Hreinsson, leikari, er fertugur í dag. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum í vikunni þótti leikaranum varla um stórt afmæli að ræða. „Í sjálfu sér ekki. En þetta er ákveðinn áfangi, jú. Ég er búinn að kvíða þessu svolítið, en ég er að jafna mig,“ sagði Baldur. „Þetta er eins og einhver sagði, það er annað hvort þetta eða að fara hina leiðina. Ég held að þessi sé skárri,“ bætti hann við. Baldur er fastráðinn við Þjóðleikhúsið, þar sem hann leikur nú í Sitji guðs englar. „Ég er í smá pásu frá æfingum, en byrja aftur í apríl. Þá hefjast æfingar á Skilaboðaskjóðunni, að ég held,“ sagði hann. Baldur kveðst ekki vera mikið afmælisbarn, og segir aðra fjölskyldumeðlimi sjá um að hampa slíkum viðburðum. Hann komist því ekki upp með að gleyma afmælunum alveg. Hann hafði hins vegar lítið hugsað fyrir deginum sjálfum, og áformaði ekki mikil veisluhöld. „Það verða örugglega einhverjir sem að kíkja á mig. Þá býð ég bara upp á vöfflur með rjóma eða eitthvað. Ég er ekki einu sinni búinn að ákveða það, svona langt er ég kominn í undirbúningi,“ sagði hann hlæjandi. „Ég vona bara að ég verði fimmtugur. Ég ætla að bíða með allar veislur þangað til,“ bætti hann við. Aðspurður hvort sú veisla yrði ekki vegleg, til að vinna upp á móti fertugsafmælinu, hló Baldur. „Ja, ég hef að minnsta kosti tíu ár til að undirbúa hana. Það er ansi góður tími.“ Yfirvofandi afmæli þótti Baldri þó merkilegra en þau sem liðin eru. „Þessi aldur er svona öðruvísi. Maður skilur þarna við þrítugsaldur og fertugsaldur og er allt í einu kominn á fimmtugsaldur. Það er svona svolítið stærra,“ sagði hann. „Pabbi minn var til dæmis fjörutíu og fimm ára þegar hann varð afi. Svo það er ekkert langt í þetta. En svo eru alltaf sumir sem klappa manni á bakið og segja að þetta sé rétt að byrja þegar maður verður fertugur. Það kemur bara í ljós, en ég vona það,“ sagði Baldur.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira