Fingur skarst af átta ára stúlku í sundi 16. desember 2007 18:43
Átta ára stúlka gekkst í gærkvöldi undir margra klukkustunda aðgerð þar sem reynt var að festa á hana fingur sem skarst af þegar hún flækti sig í vír við sundlaugarbakka í Laugardalslauginni. Stúlkan var að leik í sundlauginni síðdegis í gær ásamt vinum sínum og tveimur fullorðnum. Þegar hún ætlaði að fara upp úr sundlauginni greip hún um vír sem var við sundlaugarbakkann. Hún flækti fingurinn í vírnum og datt en við það skarst fingurinn af henni. Stúlkan var flutt á Landspítalann í Fossvogi þar sem hún gekkst í gærkvöldi og fram á nótt undir átta klukkustunda aðgerð þar sem reynt var að festa fingurinn á höndina. Aðgerðin var bæði löng og erfið en aðgerðir sem þessar eru fátíðar hér á landi. Óvíst er hvort stúlkan haldi fingrinum og kemur það ekki í ljós fyrr en á næstu dögum. Um vísifingur hægri handar er að ræða. Lögregla var kölluð á staðinn í gær en þar sem skýrslu hefur ekki verið lokið reyndist erfitt að fá upplýsingar um málið í dag. Lögreglan mun venju samkvæmt bæði tilkynna heilbrigðiseftirlitinu og Barnaverndaryfirvöldum um slysið. Í samtali við fréttastofu í dag sagðist móðir stúlkunnar ekki skilja af hverju vírinn hefði verið við sundlaugarbakkann en hann hefði verið klipptur niður af starfsmönnum strax eftir slysið. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í forstöðumann Laugardalslaugarinnar í dag.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent