Mamma vill að Kalli Bjarni afpláni á Kvíabryggju 16. desember 2007 11:00 Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, gleðst yfir því að sonur hennar fékk ekki lengri dóm en raun ber vitni. MYND/ANTON BRINK
Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi í gær fyrir að reyna að smygla tveimur kílóum af kókaíni til landsins í sumar, segist vera afar sátt við dóminn enda óttaðist hún að hann yrði jafnvel mun lengri. "Ég er afar sæl með dóminn og lít svo á að hann Kalli Bjarni minn sé að fá annað tækifæri. Ég óttaðist að dómurinn yrði mun lengri en sem betur fer þá var hann aðeins tvö ár," segir Sveinbjörg í samtali við Vísi. Hún segir að Kalli Bjarni hafi staðið sig eins og hetja frá því að hann "hljóp á vegginn" eins og hún orðar það. "Hann hefur ekki snert fíkniefni síðan hann var tekinn. Hann vinnur eins og skepna bæði dag og nótt til að borga upp skuldir sem hann hefur safnað og þótt hann nái því kannski aldrei að verða skuldlaus þá verður að taka viljann fyrir verkið," segir Sveinbjörg. Tíminn frá því að Kalli Bjarni var tekinn með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð hefur verið afskaplega erfiður fyrir alla fjölskylduna en Sveinbjörg segir það gleðilegt að nú sjái fyrir endann á þessu. "Hann þarf að borga skuld sína við samfélagið og síðan getur hann haldið áfram," segir Sveinbjörg. Hún vonast til að sonur sinn fái að afplána dóminn á Kvíabryggju enda sé þar langt um betra andrúmsloft heldur en á Litla-Hrauni. Ekki er þó enn ljóst hvar Kalli Bjarni mun verða staðsettur í betrunarvistinni. Sveinbjörg hefur staðið eins og klettur við hlið sonar síns í erfiðleikum hans. Hún þekkir líka ekki annað því dóttir hennar hefur einnig átt við fíkniefnavanda að etja. "Þau eru bæði hrein núna og ég get ekki verið annað en sátt. Þetta verða fyrstu jólin í ansi mörg ár þar sem bæði börnin eru edrú og það er yndislegt."
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira