Fernt flutt á sjúkrahús eftir árekstur - Hellisheiði ófær 18. mars 2007 17:25 MYND/Stöð 2
Fernt var flutt á sjúkrahús í Reykjavík eftir að jeppa var ekið aftan á fólksbíl á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Að sögn vaktahafandi læknis á slysadeild var fólkið allt í fólksbílnum, þar af eitt barn, og gengst það nú undir rannsókn. Blindhríð var á vettvangi þegar slysið varð og sögðu sjúkraflutningamenn að fólkið hafi verið orðið kalt en 7-8 stiga frost var á heiðinni og mikið hvassviðri. Þurfti að kalla út björgunarsveitarmenn til að aðstoða sjúkrabílinn yfir heiðina og er heiðin nú lokuð. Er fólki bent á að fara Þrengslin. Þá er enn ófært á Holtavörðuheiði en þar hafa björgunarsveitir aðstoðað um tug bíla sem fastir voru á heiðinni, en sumir þeirra voru ekki búnir til þess að leggja á heiðina í færð eins og í dag. Auk þess er Brattabrekka einnig ófær en fólki er bent á að fara Laxárdalsheiði og Heydal. Björgunarsveitir frá Borgarnesi voru sömuleiðis kallaðar út til að sækja norska ferðamann sem fastur ver í bíl sínum við Ölver. Enn fremur er Víkurskarð enn ófært og beðið er átekta með mokstur og þá lokar snjóflóð sem féll í dag Súðavíkurhlíð. Slæmt veður er á Norðurlandi, Norðausturlandi og Austurlandi og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg því til fólks að leggja ekki í ferðalög, og þá sérstaklega ekki á heiðar, á illa útbúnum smábílum. Vegagerðin segir auk þess að ekkert ferðaveður sé milli Djúpavogs og Hafnar í Hornafiði og ekki heldur í Mývatnssveit.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira