Framtíðarlandið býður þjóð og ráðamönnum sáttmála 18. mars 2007 15:35 María Ellingsen leikkona kynnir sáttmálann í Þjóðmenningarhúsinu í dag. MYND/Stöð 2
Framtíðarlandið kynnti í dag sáttmála um framtíð Íslands sem samtökin bjóða þjóðinni og ráðamönnum að undirrita. Sáttmálinn kveður á um að þjóðin hafi kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag þar sem hugvit og sköpunargleði fær að njóta sín ásamt því að áætlanir um náttúruvernd verði lögfestar áður en nokkuð frekar verður aðhafst í orkuvinnslu og stóriðju. Þá kveður sáttmálinn á um að Íslendingar axli ábyrgð sína á tímum loftlagsbreytinga með því að fylgja alþjóðlegum skuldbindinugum um losun gróðurhúsalofttegunda. Fram kom á blaðamannafundi Framtíðarlandsins í dag þar sem sáttmálinn var kynntur að deilur í vikjana- og stóriðjumálum hefðu klofið þjóðina og myndu aðeins magnast. Því væri sáttmálinn lagður fram. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands er verndari sáttmálans. Í tilkynningu Framtíðarlandsins vegna sáttmálans segir að fyrir stjórnmálamenn þýði þetta að áður en ráðist verði í nokkrar frekari virkjunar- eða stóriðjuframkvæmdir verði búið að afgreiða og samþykkja fyrsta og annan áfanga Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og að Rammaáætluninni í heild verði gefið lögformlegt vægi. Fjölmargir hafa þegar stutt sáttmálann, þar á meðal Sigurbjörn Einarsson biskup, Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner, Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, Guðný Halldórsdóttir Laxness kvikmyndaleikstjóri og Guðrún Agnarsdóttir, læknir og forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Hægt er að skoða sáttmálann og skrifa undir hann á heimasíðu Framtíðarlandsins, www.framtidarlandid.is
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Inga segir já Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Fleiri fréttir Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Kvöldfréttir: Bjarni Ben og Halla Gunnars í beinni og fjöldafundur „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Sjá meira