Rafræn skilríki í stað auðkennislykla 13. júlí 2007 06:00 Fartölva búin kortalesara sem verður staðalbúnaður í framtíðinni. MYND/Hörður
Dreifing á rafrænum skilríkjum til auðkennis og rafrænna undirskrifta hefst í haust. Kortin munu með tímanum leysa af hólmi auðkennislyklana sem bankarnir dreifðu fyrr á þessu ári. „Bankar og sparisjóðir byrja að dreifa kortunum til sinna viðskiptavina í haust. Þau koma í staðinn fyrir venjuleg debetkort þannig að það eru engin viðbótarkort sem fólk þarf að hafa. Bara debetkort með örgjörva,“ segir Haraldur Bjarnason, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu. Ráðuneytið vinnur að þróun skilríkjanna ásamt Auðkenni hf., sem er sérhæft fyrirtæki um öryggismál rafrænna viðskipta í eigu allra helstu fjármálastofnana landsins. „Auðkennislyklarnir munu lifa einhvern tíma til viðbótar. Bankarnir hafa enn ekki ákveðið hvernig staðið verður að dreifingu; hvort allir fái kortin í einu eða bara við endurnýjun debetkorta,“ segir Logi Ragnarsson, framkvæmdatjóri Auðkennis hf. Skilríkið verður lykill að vefsíðum eins og netbanka, hægt verður að skrifa undir skjöl og pappíra og mögulegt verður að takmarka aðgang að spjallborðum við ákveðna hópa, til dæmis unglinga á aldrinum fjórtán til sextán ára. Hægt verður að fá kortalesara sem tengist við tölvu á einfaldan hátt. Nú þegar er hægt að fá fartölvur með kortalesara og verður það væntanlega staðalbúnaður í tölvum í framtíðinni. „Til einföldunar er hægt að setja notkun kortanna í þrjá flokka. Þetta verða debetkort sem stungið er í sérstaka posa og lykilorð slegin inn til staðfestingar á greiðslu. Þetta verða auðkenni til innskráningar á vefi, til dæmis netbanka. Að lokum er þetta rafræn undirskrift. Fólk getur þá sótt um lán í netbankanum og skrifað undir rafrænt með því að setja kortið í lesarann og slá inn lykilorð,“ segir Vilhjálmur Halldórsson hjá Glitni. Spurður um kostnað við útgáfu auðkennislykla segist Vilhjálmur ekki hafa þær tölur. „Auðkennislyklarnir voru skref í átt að auknu öryggi. Rafrænu skilríkin eru síðan rökrétt framhald af þeim og hagkvæm lausn sem tryggir öryggi til framtíðar,“ segir Vilhjálmur.
Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Innlent Segjast hafa skotið niður aðra bandaríska herflugvél Erlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Fleiri fréttir „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Sjá meira