Innlent

Nýtt apótek á Akranesi

Ólafur Adolfsson
Ólafur Adolfsson

Nýtt apótek, Apótek Vesturlands, var opnað á Akranesi á laugardaginn. Það er í eigu Ólafs Adolfssonar lyfjafræðings.

Nýtt sjálfstætt apótek sætir tíðindum því Lyfja og Lyf og heilsa ráða bróðurpartinum af lyfjaverslunum í dag. Aðeins eitt annað apótek er á Vesturlandi sem ekki er í eigu Lyfju eða Lyfja og heilsu. Það er í Ólafsvík.

Ólafur segir að apótekið hafi farið mjög vel af stað en opið verður alla daga vikunnar sem er nýjung á Akranesi. Stór búð verður rekin samhliða apótekinu þar sem seldar verða hollustu- og heilsuvörur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×