Borgarráð samþykkir að hafna samruna REI og GGE 1. nóvember 2007 11:25 MYND/GVA
Samþykkt var einróma á fundi borgarráðs í morgun að hafna samruna Reykjavík Energy Invest, útrásararmi Orkuveitunnar, og Geysis Green Energy. Það var Svandís Svavarsdóttir, formaður stýrihóps sem skoðað hefur REI-málið, sem lagði tillöguna fram. Jafnframt var samþykkt að fallast ekki á 20 ára þjónustusamning Orkuveitunnar og REI sem gerði meðal annars ráð fyrir að REI fengi aðgang að tækniþekkingu OR og forgang á verkefni OR erlendis. Var stjórn Orkuveitunnar falið að ljúka málinu af hálfu borgarinnar. Þá var samþykkt að fela innri endurskoðun borgarinnar að gera stjórnsýsluúttekt á Orkuveitu Reykjavíkur en gert er ráð fyrir að stýrihópur borgarinnar í málinu starfi áfram. Reykjavik Energy Invest mun auk þess starfa áfram að útrás. Málsmeðferðin verulegt áfall fyrir stjórnsýslu borgarinnar Fram kemur í greinargerð með tillögunni að stýrihópurinn hafi frá 18. október farið yfir fjölmargar hliðar samrunans og kallað á sinn fund marga málsaðila, þar á meðal Bjarna Ármannsson, stjórnarformann Reykjavik Energy Invest, Hjörleif Kvaran, starfandi forstjóra Orkuveitunnar, Guðmund Þóroddsson, forstjóra Reykjavik Energy Invest, borgarlögmann og Helga Jóhannesson lögmann sem stýrði fundi Orkuveitunnar þar sem samrunninn var samþykktur. Stýrihópurinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð og ákvarðanataka í samningaferli um sameiningu Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy kunni að orka verulega tvímælis og sé ekki hafin yfir vafa. Málsmeðferðin er því verulegt áfall fyrir stjórnsýslu Reykjavíkurborgar segir í greinargerðinni. Engar haldbærar skýringar eða rök hafi komið fram sem réttlæta þann hraða sem viðhafður var í málinu og leiddi til þess að reglur um boðun eigendafunda hafi verið brotnar og að stjórnarmenn OR og fulltrúar eigenda fengu takmörkuð tækifæri til að skoða og yfirfara gögn í málinu og byggja sína ákvörðun þannig á fullnægjandi forsendum. Slíkt hljóti að teljast afar alvarlegt þegar um er að ræða svo yfirgripsmikla ákvörðun sem hér er til umfjöllunar. Málefni REI komust í hámæli upphafi síðasta mánaðar, meðal annars vegna samrunans við GGE og kaupréttarsamninga til valinna starfsmanna REI og Orkuveitunnar. Leiddi málið á endanum til falls meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borginni og nýr meirihluti tók við sem farið hefur ofan í saumana á málinu.
Tengdar fréttir Vonar að ákvörðun borgarráðs hægi ekki á orkuútrás Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist vona að sú ákvörðun borgarráðs að hafna samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy verði ekki til þess að hægja á útrás íslenskra fyrirtækja í orkumálum. Hann segir þetta mál borgarstjórnar en hann eigi ekki von á ákvörðunin dragi úr útrásinni. 1. nóvember 2007 11:55 Björn Ingi: Ákvörðun tekin til að skapa sátt um Orkuveituna Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir að ákvörðun um að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy, sé tekin til þess að skapa frið um málefni OR eftir miklar deilur um lögmæti eigendafundarins og 20 ára samningsins. 1. nóvember 2007 12:44 FL Group tjáir sig ekki að svo stöddu Halldór Kristmannsson, forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group, segir í samtali við Vísi að félagið, sem er stærsti hluthafinn í Geysi Green Energy, muni ekki tjá sig um ákvörðun Borgarráðs um að hafna samrúna REI og GGE að svo stöddu. 1. nóvember 2007 11:56 Upplýsingafulltrúi REI: Bjóst við þessari ákvörðun Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi REI, segir í samtali við Vísi að REI muni skoða sín mál miðað við breyttar forsendur eftir að borgarráð ákvað að hafna samruna REI og Geysis Green Energy á fundi sínum í morgun. 1. nóvember 2007 11:41 Full efni til þess að hafna samrunanum „Við teljum að það séu full efni til þess að hafna samrunanum á þeim forsendum sem við blasa," segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn og formaður stýrihóps um málefni Reykjavik Energy Invest. 1. nóvember 2007 12:22 Stjórnsýsluúttektin verði unnin fljótt og vel „Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið í ferlinu en málinu er ekki lokið,“ segir Gísli Marteinn Baldursson um ákvörðum borgarráðs sem í dag ákvað að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysi Green Energy. „Það reið á að borgin sýndi það í verki að henni líkaði ekki við það hvernig að þessum málum var staðið. Það er lykilatriði í þessu máli öllu að vilji borgarráðs og borgarstjórnar lá aldrei fyrir í málinu.“ 1. nóvember 2007 12:01 Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira
Vonar að ákvörðun borgarráðs hægi ekki á orkuútrás Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist vona að sú ákvörðun borgarráðs að hafna samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy verði ekki til þess að hægja á útrás íslenskra fyrirtækja í orkumálum. Hann segir þetta mál borgarstjórnar en hann eigi ekki von á ákvörðunin dragi úr útrásinni. 1. nóvember 2007 11:55
Björn Ingi: Ákvörðun tekin til að skapa sátt um Orkuveituna Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir að ákvörðun um að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy, sé tekin til þess að skapa frið um málefni OR eftir miklar deilur um lögmæti eigendafundarins og 20 ára samningsins. 1. nóvember 2007 12:44
FL Group tjáir sig ekki að svo stöddu Halldór Kristmannsson, forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group, segir í samtali við Vísi að félagið, sem er stærsti hluthafinn í Geysi Green Energy, muni ekki tjá sig um ákvörðun Borgarráðs um að hafna samrúna REI og GGE að svo stöddu. 1. nóvember 2007 11:56
Upplýsingafulltrúi REI: Bjóst við þessari ákvörðun Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi REI, segir í samtali við Vísi að REI muni skoða sín mál miðað við breyttar forsendur eftir að borgarráð ákvað að hafna samruna REI og Geysis Green Energy á fundi sínum í morgun. 1. nóvember 2007 11:41
Full efni til þess að hafna samrunanum „Við teljum að það séu full efni til þess að hafna samrunanum á þeim forsendum sem við blasa," segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn og formaður stýrihóps um málefni Reykjavik Energy Invest. 1. nóvember 2007 12:22
Stjórnsýsluúttektin verði unnin fljótt og vel „Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið í ferlinu en málinu er ekki lokið,“ segir Gísli Marteinn Baldursson um ákvörðum borgarráðs sem í dag ákvað að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysi Green Energy. „Það reið á að borgin sýndi það í verki að henni líkaði ekki við það hvernig að þessum málum var staðið. Það er lykilatriði í þessu máli öllu að vilji borgarráðs og borgarstjórnar lá aldrei fyrir í málinu.“ 1. nóvember 2007 12:01