Stjórnsýsluúttektin verði unnin fljótt og vel 1. nóvember 2007 12:01 MYNd/Pjetur „
Við lítum á þetta sem fyrsta skrefið í ferlinu en málinu er ekki lokið," segir Gísli Marteinn Baldursson um ákvörðum borgarráðs sem í dag ákvað að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysi Green Energy. „Það reið á að borgin sýndi það í verki að henni líkaði ekki við það hvernig að þessum málum var staðið. Það er lykilatriði í þessu máli öllu að vilji borgarráðs og borgarstjórnar lá aldrei fyrir í málinu." Gísli segir að þessi ákvörðun sé fyrsta skrefið í málinu og að samstaða hafi verið á meðal fulltrúa flokkana að stíga það. Í framhaldi af þessari ákvörðun verður gerð stjórnsýsluúttekt á Orkuveitu Reykjavíkur. „Það þarf að gera úttekt á því hvort lög hafi verið brotin í þessu máli, en það bendir ýmislegt til þess," segir Gísli og bætir því við að mikið ríði á að sú úttekt verði unnin fljótt og vel. „Það má kannski segja það," segir Gísli aðspurður hvort þessi leið sé betri en upphaflega hugmynd sjálfstæðismanna, sem vildu selja eignarhluta Orkuveitunnar í REI sem fyrst. „Það náðist samkomulag um að fara þessa leið og við í Sjálfstæðisflokknum erum sátt við það." Að sögn Gísla Marteins hefur ekki verið rætt um hvort þessi ákvörðun borgarráðs geti gert borgina skaðabótaskylda í málinu. „Það er hugsanlegt að slíkt gæti komið til en það veltur ekki síst á því á því hvað kemur í staðinn," segir Gísli og bætir við að fyrst og fremst hafi verið samstaða um að eyða þeirri óvissu sem upp hefði verið komin í málinu öllu. Hann segir líka mikilvægt að vandræði borgarinnar í málinu bitni ekki meira en orðið er á þeim einkaaðilum sem hlut eiga að máli. „Það er okkar megin sem vinnubrögðuin voru ekki í lagi og það er ótækt að láta það bitna á samstarfsaðilunum."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira