Vildu ekki Framsókn í brúðkaupið 8. maí 2007 10:30 Ekki var við það komandi að halda brúðkaupsveislu undir þessu þaki. MYND/GVA „
Já, ég fann fyrir þau annan sal og sá um veisluna fyrir þau. Ég sjálfur er sjálfstæðismaður og skildi þeirra sjónarmið,“ segir Stefán Ingi, veitingamaður hjá Veisluhaldi ehf. Ungum brúðhjónum, sem gengu í það heilaga um síðustu helgi, brá heldur í brún þegar þau óku framhjá samkomuhúsinu þar sem til stóð að halda brúðkaupsveislu þeirra: Ýmishúsinu svonefnda sem er undir Öskjuhlíð. Á þaki hússins er búið að koma fyrir gríðarmiklum auglýsingum þar sem Framsóknarflokkurinn er auglýstur með risavöxnum myndum af frambjóðendum. Fer þar Jón Sigurðsson formaður fyrir sínu fólki. Hvorki hjá brúði né brúðguma var hinn minnsti áhugi fyrir því að halda brúðkaupsveisluna undir slíku þaki og það þrátt fyrir að framsóknarmaddaman hafi verið þaulsetin í sínum hjónaböndum bæði í landstjórn og borg. En kannski ekki eins hamingjusöm og hún er þaulsetin. Brúðguminn vildi ekki tjá sig um þetta undir nafni í samtali við Fréttablaðið en sagði þó að þessi afstaða þeirra hefði notið skilnings allra. Ekki var við það komandi að fá þessar auglýsingar fjarlægðar fyrir veisluna og brást þá Stefán Ingi skjótt við og fékk sal í Rúgbrauðsgerðinni. Þar fór veislan fram og skemmtu menn sér hið besta.-
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira