Mills vill milljón á dag 9. mars 2007 06:30 Heather Mills krefst þess að McCartney borgi sér fjörutíu milljónir punda ef hann vill flýta skilnaðinum.
Heather Mills hefur sett fram kröfur um háar greiðslur úr búi fyrrum eiginmanns síns, Pauls McCartney. Málið er í hnút því Paul neitar öllum slíkum tilboðum. Skilnaður sir Paul McCartney og Heather Mills virðist ekki ætla að ganga ljúflega fyrir sig. Eins og kom fram í fjölmiðlum fyrir nokkrum mánuðum gengu fúkyrði og ásakanir um ofbeldi og kúgun þeirra á milli en öldurnar lægði eftir sameiginlega ákvörðun um að fara með málið fyrir dómstóla. Deilurnar risu þó á ný og það andar köldu milli hjónakornanna fyrrverandi. Mills hefur sett fram kröfu um að bítillinn fyrrverandi greiði henni milljón á dag, sömu upphæð og knattspyrnukappinn Wayne Rooney fær frá Manchester United á hverjum degi. Mills hefur jafnframt boðist til að flýta fyrir málsmeðferðinni en það kosti McCartney rúmar fjörutíu milljónir punda sem samsvarar fimm milljörðum íslenskra króna. Sir Paul hefur hafnað báðum þessum tilboðum. „Þetta eru ótrúlegar kröfur," hefur breska blaðið The Sun eftir nánum vini bítilsins. Vonast hafði verið til að hvorki Paul né Heather þyrftu að mæta fyrir dómara en samkvæmt götublaðinu hafa þau bæði látið sjá sig í réttarsal Lundúna þrívegis. Heimildarmenn innan herbúða McCartneys segja Paul ekki sætta sig við það mat sem fram hefur farið á eignum hans en samkvæmt lista The Sunday Times yfir ríkustu menn Bretlands eru auðævi McCartneys metinn á 115 milljarða íslenskra króna. „Paul er ekki svona ríkur, þetta er algjört ofmat á ríkidæmi hans. Paul á í mesta lagi 500 milljónir punda," hefur The Sun eftir vini bítilsins. Fjandskapurinn milli Mills og McCartneys virðist hafa aukist með hverjum degi, þau hittast ekki þegar Beatrice kemur til þeirra og samkvæmt The Sun má telja líklegt að réttarhöldin dragist verulega á langinn, jafnvel fram á næsta ár.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira