Olíufélög í hár saman 21. október 2007 18:38
Fyrirtækin Atlantsolía og Olís eru komin í hár saman eftir að það síðastnefnda lét draga auglýsingabifreið Atlantsolíu í burtu. Framkvæmdastjóri Atlantsolíu krefst þess að Olís skili bílnum og greiði öll gjöld vegna þessa. Forsaga málsins er sú að föstudaginn komu starfsmenn Atlantsolíu fyrir auglýsingabifreið á bílastæði við Skúlagötu en stæðið liggur við hliðiná bensínstöð Olís. Þegar starfsmennirnir komu til baka daginn eftir var bíllinn hins vegar á bak og burt. Við nánari eftirgrennslan fengust þau skilaboð að Vaka hefði fjarlægt bílinn að beiðni Olís. Vísuðu Olísmenn til þess að stæðið sé þeirra eign. Þessa skýringu vill Albert Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, ekki sætta sig við og telur að bifreiðin hafi verið fjarlægð án fyrirvara og með ólöglegum hætti í skjóli nætur. Þá telur hann ekki sannað að lóðin tilheyri Olís. Í gær mætti hann í höfuðstöðvar Vöku og krafðist þess að bílnum yrði skilað og reikningurinn sendur Olís. Af símasamtali Alberts við starfsmann Olís að dæma var hins vegar ljóst að þeir ætluðu ekki að bakka í málinu. Albert segir ljóst að fari svo að bílnum verði ekki skilað muni hann setja lögfræðinga í málið. Í samtali við fréttastofu sagði Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Olís, það ekki koma til greina að láta undan kröfum Atlantsolíu. Sagði hann félagið í fullum rétti að láta fjarlægja bifreiðina þar sem lóðin sé án nokkurs vafa eign Olís
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Fleiri fréttir Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Sjá meira