Innlent

Ekki alvarleg slys í óhappinu á Breiðholtsbraut

Pallbíll og fólksbíll skullu saman á Breiðholtsbraut við Seljaskóga á níunda tímanum í gærkvöld. Þrír voru fluttir á slysadeild og þurfti klippur tækjabíls til að losa einn úr öðrum bílnum.

Að sögn lögreglunnar slasaðist enginn alvarlega. Fyrr um kvöldið var lögreglan kölluð út í Mosfellsseit, við Álafossveginn. þar höfðu þrír bílar skollið saman. Einn var fluttur á slysadeild en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg.

Mikil hálka hefur myndast á mörgum götum höfuðborgarsvæðisins og er ástæða til að brýna fyrir ökumönnum að fara varlega í umferðinni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×