Sýknaður af því að hafa nefbrotið samfanga sinn viljandi í knattspyrnuleik 20. desember 2007 16:41 MYND/Stefán
Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Suðurlands og sýknaði fanga á Litla-Hrauni af ákæru um líkamsárás með því að hafa slegið samfanga sinnn í andlitið í knattspyrnuleik á íþróttasvæði fanga á Litla-Hrauni. Sá sem varð fyrir högginu nefbrotnaði og hafði héraðsdómur dæmt þann sem átti að hafa slegið í þriggja mánaða fangelsi og til þess að greiða hinum fanganum 220 þúsund krónur í bætur. Hæstiréttur sýknaði hann hins vegar þar sem ekki þótti komin fram sönnun þess að hann hefði vísvitandi slegið manninn, en mikil harka mun hafa verið í knattspyrnuleiknum. Þá var í dómi Hæstaréttar vísað til þess að með þátttöku í knattspyrnu gengju menn af frjálsum vilja til leiks sem lyti ákveðnum reglum. Kynni háttsemi í leiknum, sem við aðrar aðstæður væri refsiverð, að vera refsilaus ef hún væri innan marka venjulegs leiks og í beinum tengslum við hann. Þótti ósannað að hinn ákærði hefði farið út fyrir það sem vænta mætti við iðkun knattspyrnu þegar leikmönnum hlypi kapp í kinn. Maðurinn var einnig ákærður fyrir vörslu fíkniefna sem fundust í jakka við leit í klefa hans. Með hliðsjón af því hvernig staðið hafði verið að rannsókn málsins og þar sem maðurinn hafði ekki verið spurður hvort hann hefði haft vitneskju um fíkniefnin þótti ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna að hann hafi vitað eða mátt vita af þeim í klefanum.
Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Erlent Fleiri fréttir „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Sjá meira