Farbannsmenn flýja á fölsuðum skilríkjum 18. desember 2007 12:03 Grunur leikur á að tveir menn grunaðir um nauðgun hafi flúið land.
Heimildir Vísis herma að Pólverjarnir sem grunaðir voru um nauðgun á Selfossi og settir voru í farbann í kjölfarið hafi komist úr landi undir fölsku nafni. Þegar ferðast er innan Schengen-svæðisins þarf einungis að sýna einföld persónuskilríki á borð við ökuskírteini en ekki vegabréf. Því er talið að mennirnir hafi ferðast til lands á meginlandi Evrópu, til dæmis til Danmerkur og þaðan hafi þeir komist til sins heima, en Pólland er ekki enn orðið aðili að Schengen. Staðfest hefur verið að einn þeirra sem grunaður var í málinu er farinn úr landi og nú leikur grunur á því að annar sé einnig flúinn. Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, vildi ekki tjá sig um mál mannanna tveggja þegar Vísir leitaði eftir því við hann. Hann sagði hins vegar að hann og hans kollegar hafi ítrekað bent stjórnvöldum á að farbannsúrskurður sé afar veikt úrræði þegar um er að ræða fólk sem ekki hefur tengsl við landið og er hér aðeins tímabundið. „Þegar maður er ekki með fasta vinnu hér, á ekki fasteign hér eða fjölskyldu hlýtur sú hætta að aukast að hann reyni að flýja land eigi hann dóm yfir höfði sér. Það hefur verið tregða hjá dómstólum að viðurkenna að þessi hætta sé fyrir hendi í tilfellum þar sem þetta á við," segir Jóhann. Hann segir tvær hugmyndir til lausnar þessum vanda einkum verið ræddar. „Við teljum tvennt vera í stöðunni. Annars vegar að dómari fari fram á háa tryggingu gegn lausn úr gæsluvarðhaldi. Geti menn ekki lagt fram slíka tryggingu þá sitja þeir áfram í varðhaldi. Hins vegar hefur verið rætt um að koma á kerfi þar sem menn í farbanni bæru ökklabönd þannig að unnt sé að koma í veg fyrir að þeir fari úr landi," segir Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira