Engin niðurstaða komin í mál REI og GGE 17. desember 2007 13:01 MYND/Róbert
Engin niðurstaða er komin í viðræður Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy um viðskilnað félaganna en viðræður standa enn yfir. Mál gætu að hluta til skýrst í dag þegar bæjarráð Hafnarfjarðar ákveður hvort selja eigi hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur. Borgaryfirvöld ákváðu í síðasta mánuði að falla frá samruna REI og Geysis Green Energy sem gekk í gegn á umdeildum eigendafundi í Orkuveitunni í byrjun október. Var stjórn Orkuveitunnar falið að ganga frá málinu. Þann 16. nóvember ákvað svo eigendafundur Orkuveitunnar að fela Bryndísi Hlöðversdóttur stjórnarformanni að að ræða við aðra eigendur REI og Geysis Green Energy um framhald málsins og hefur þegar verið ákveðið að Orkuveitan kaupi aftur hlut Bjarna Ármannssonar, fráfarandi stjórnarformanns, og Jóns Diðriks Jónssonar í REI. Að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur er hins vegar ekki komin nein lending í málum REI og Geysis Green Energy en hún segir að málið sé í ágætri vinnslu. Hún býst við því að fundað verði vegna þess í vikunni. Bryndís segir REI og Geysi Green hafa unnið saman að ýmsum verkefnum að undanförnu og segir hraðann ekki fyrir öllu í málinu heldur að ná góðri niðurstöðu.Meðal þess sem haft gæti áhrif á lausn málsins er ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um það hvort rúmlega 15 prósenta hlutur bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja verði seldur Orkuveitunni. Samkvæmt upprunalegum samrunaáætlunum REI og Geysis Green átti hlutur Hafnfirðinga að fara inn í REI en ekki liggur fyrir hvernig þeim hlutum verður háttað nú þegar REI verður alfarið í eigu borgarinnar. Bæjarráð Hafnarfjarðar fundar sem stendur um sölu á hlut sínum.Aðspurð segir Bryndís að ekki sé búið að ákveða hver taki við stjórnarformennsku af Bjarna Ármannssyni í REI en hann hættir um áramót. Unnið sé að málinu með það fyrir augum að ljúka því fyrir áramót enda geti félagið ekki orðið stjórnarformannslaust.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira